Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög falleg og rúmgóð 3 herbergja 79,3 fm íbúð á 1.hæð með stæði í bílakjallara og suður svalir við Seilugranda 2 í Reykjavík. Eignin skiptist í : forstofu/hol, tvo góð herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Stór geymsla í kjallara, 12,0 fm og er hún ekki skráð inn í fermetratölu eignarinnar.
Íbúðin er 79,3 fm + bílastæði í bílakjallara sem telst 30,9 fm. Samtals skráð stærð 110,2 fm.
Íbúðin er staðsett á fyrsta stigapalli og er með suðursvölum og er með glugga í tvær áttir.
Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D // Húsið hefur verið mikið endurnýjað.// Frábær fyrstu kaup.
// Stæði í bílakjallara.
// Vel staðsett eign
// Stór sameiginlegur garður.
// Húsið mikið endurnýjað.
// Suðursvalir.//
Stutt í þjónustu, skóla og leikskóla.Lýsing eignar:Forstofa: Rúmgóð með hvítum sprautulökkuðum stórum fataskáp með rennihurðum og vandaðar 60x60 flísar á gólfi
Stofa/borðstofa: Rúmgóð með harðparket á gólfi. Stórir gluggar, útgengt á svalir til suðurs.
Eldhús: Ljós viðarinnrétting með miklu skápaplássi, parket á gólfi, góður borðkrókur. Gluggi í eldhúsi til norðurs.
Herbergi 1: Parket á gólfi og er mjög rúmgott.
Herbergi 2: Parket á gólfi og með stórum fataskáp.
Baðherbergi: Endurnýjað með vönduðum 60x60 flísum á gólfi og veggjum. Walk-in sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 12fm. geymsla í í kjallara er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar.
Bílakjallari: Merkt stæði í bílakjallara.
Sameign: Stigahús er nýmálað og gólfefni endurnýjuð. Í sameign er sameiginlegt rými sem er leigt út og gengur leigufjárhæðin til húsfélagsins
Framkvæmdir undanfarin ár samkvæmt seljanda:
2021 - Íbúð máluð og settir nýir gólflistar
2023 - Þak - Klæðning, pappi og rennur á norðurhlið.
2024 - Ytra byrði - Húsið málað og múrviðgert (Múr og mál)
2024 - Forstofa (bíslag) við aðalinngang endurnýjað - Hurð, gluggar, gler og þak.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.