RE/MAX Ísland logo
Skráð 29. okt. 2026
Söluyfirlit

Selvogsgata 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
141.8 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
810.296 kr./m2
Fasteignamat
84.600.000 kr.
Brunabótamat
77.220.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1934
Þvottahús
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2078738
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Skráning og nýting: Fjöldi útleigueininga miðast við núverandi nýtingu eignarinnar. Á fyrirliggjandi uppdráttum eru rými í kjallara meðal annars merkt sem vinnuherbergi og geymslur og skúrinn sem geymsluskúr.
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið endurnýjaða 141 m² eign við Selvogsgötu 17 með fjórum útleigueiningum í núverandi nýtingu. Þriggja herbergja íbúð á 2. hæð, tvær einingar í kjallara og sjálfstæður skúr á lóðinni með eldhúsaðstöðu og baðherbergi. Sérafnot fylgja eignarhlutanum af rúmgóðum palli fyrir aftan húsið.
Heildarstærð eignarinnar er 141,8 m².

Eign með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum, meðal annars til eigin búsetu samhliða útleigu.

– Fjórar útleigueiningar í núverandi nýtingu.
– Tvö svefnherbergi í íbúð á 2. hæð.
– Tvær aðskildar einingar í kjallara, gerðar 2020 og 2024.
– Skúr settur á lóðina og innréttaður sem íbúð árið 2024.
– Sérafnot af palli fyrir aftan húsið, gerðum 2022.
– Húsið múrviðgert 2020 og málað 2021.
– Þakjárn endurnýjað 2024


Nánari lýsing íbúðar á 2. hæð - 59,9 m²
Gengið er inn um sameiginlegt anddyri með íbúðinni á hæðinni fyrir neðan. Stigi liggur upp á 2. hæð og er stigapallurinn séreign íbúðarinnar.
Hol tengir saman rými íbúðarinnar og er með viðarlituðu gólfefni sem flæðir áfram um eldhús, stofu og svefnherbergi.
Stofan er björt með gluggum á tveimur hliðum og aðstöðu fyrir setustofu.
Eldhúsið var endurnýjað 2019 og er með hvítum neðri skápum, dökkum efri skápum, ofni, helluborði og aðstöðu fyrir uppþvottavél. Við eldhúsið er pláss fyrir borðstofuborð.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð og bæði með fataskápum.
Baðherbergið er með sturtuklefa, upphengdu salerni, vaskskáp, handklæðaofni og glugga til loftunar. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í turni. Dökkar veggklæðningar og viðaráferð setja svip á rýmið.
Geymsluloft er yfir íbúðinni, með aðgengi um lúgu og stiga frá holi.

Nánari lýsing íbúðar 2 í kjallara – gerð 2020 - 32,7 m²
Einingin var gerð frá grunni árið 2020. Við framkvæmdirnar var gólfið grafið niður að hluta, einangrað og steypt plata með gólfhita. Sérinngangur er fyrir aftan húsið.
Eldhúsið er með gráum neðri skápum og hvítum efri skápum, góðu skápaplássi, ofni í vinnuhæð og örbylgjuofni. Aðstaða er fyrir borðstofuborð og flísar á gólfi.
Stofan er með flísum á gólfi, glugga að bakgarði og viðarrimlum á einum vegg.
Svefnherbergið er með glugga og viðarlituðu gólfefni. Fataskápur er við inngang einingarinnar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, salerni, vaskskáp, speglaskáp og handklæðaofni.

Nánari lýsing íbúðar 3 í kjallara – gerð 2024 - 30,8 m²
Einingin var útbúin árið 2024 og er með flísum á gólfum.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Eldhúsinnréttingin er hvít með dökkri borðplötu, ofni og helluborði. Aðstaða er fyrir lítið borðstofuborð og setustofu. Útidyr með gleri og gluggar veita birtu inn í rýmið.
Svefnherbergið er með ljósum flísum á gólfi og glugga.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, upphengdu salerni og vaskskáp með spegli fyrir ofan.

Nánari lýsing skúrs á lóð – innréttaður 2024 - 18,4 m²
Skúrinn var fluttur á lóðina árið 2024 og innréttaður sem stúdíóíbúð sama ár. Skúrinn sjálfur var ekki nýr við uppsetningu. Hann er einangraður, með sérinngangi.
Aðalrýmið er með viðarlituðu gólfefni, gluggum og aðstöðu fyrir rúm og lítið borðstofuborð. Viðarrimlar og opnar hillur setja svip á rýmið.
Eldhúsaðstaða er við innganginn, með vask, borðplötu og skápum.
Baðherbergið er með sturtuklefa, salerni og vaskskáp.

Lóð og útisvæði:
Fyrir aftan húsið er rúmgóður timburpallur og fylgja eignarhlutanum sérafnot af honum. Þaðan er aðgengi að einingum í kjallara og skúrnum.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali, í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Byggt 2000
18.4 m2
Fasteignanúmer
2078738
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.870.000 kr.
Matsstig
8 - Í notkun

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Drekavellir 4
221 Hafnarfjörður
157,4 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
514
698 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Klukkuvellir 34
221 Hafnarfjörður
136 m2
Raðhús á einni hæð
413
845 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Drekavellir 6
221 Hafnarfjörður
189,3 m2
Fjórbýli
514
644 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Drekavellir 36
221 Hafnarfjörður
175,6 m2
Fjölbýlishús
423
654 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin