RE/MAX kynnir rúmgóða, bjarta og skemmtilega íbúð með sérinngangi í litlu fjölbýli við Drekavelli 36 í Vallarhverfinu í Hafnarfirði.
Eignin er á 3 hæðum og er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 175,6 fm.
Skoðaðu eignina í 3D hér. Nánari lýsing:
1. hæð
Forstofa er rúmgóð, flísalögð og með fataskáp.Teppalagður stigi upp á 2. hæð.
2. hæð
Stofa og borðstofa eru í sameiginlegu björtu og opnu rými með parketi á gólfi, mikilli lofthæð, þakgluggum og útgengi á suðursvalir..
Eldhús er rúmgott og bjart, með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Tengi er fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Rúmgott
svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum, uppáhengt WC og baðinnrétting ásamt sturtubaðkari
3. hæð
Baðherbergi og þvottahús með flísum í hólf og gólf, uppáhengt klósett ásamt sturtu. Í þvottahúsi er pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sjónvarpshol, var búið til úr geymslu sem var þar fyrir og var rýmið opnað og hurð fjarlægð.
Svefnherbergi eru tvö og eru þau bæði mjög stór, með parketi á gólfum. Loftgluggar eru í báðum herbergjum sem gefur fallega birtu.
Geymsluloft er fyrir ofan baðherbergi og þvottahús.
Hjólageymsla er í sameign.
Eignin er mjög vel staðsett í Vallahverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Helstu matvöruverslanir eru í næsta nágrenni. Hraunvallaskóli og Hraunvallaleikskóli eru í sömu götu ásamt því að leikskólinn Bjarkarlundur er í göngufæri. World Class, íþróttahús Hauka og sundlaugin eru einnig í göngufæri.
Allar upplýsingar veitir Magnús Filip Sævarsson, löggiltur fasteignasali, magnús@remax.is, sími 691-6434.1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.