Sveinn Gíslason og RE/MAX kynna fjögurra herbergja 113,5 fm neðri hæð í fallegu tvíbýlishúsi að Skipasundi 52, 104 Reykjavík. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Þróttar og íþróttaaðstöðu Ármanns og allt það sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali
sveinn@remax.is sími
859-5559.
Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gengið inn gang með fatahengi og þaðan inn í svefnhvergin, baðherbergi og inn í stofu.
Stofan er með harðparketi á gólfi og og útgengt út í garð út á steypta verönd út um stóra tvöfalda hurð. Ath að steypta veröndin er skráð 11 fm sólstofa þar sem fyrir liggur byggingaleyfi fyrir henni.
Eldhúsið er með dökkri innréttingu (filmuð), lausri eyju og hvítum efri skápum. Nýlegt Samsung span helluborð, bakaraofn og tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú eitt með skápum. Áfastir gluggahlerar eru á herbergisgluggum sem setja skemmtilegan svip á rýmin.
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi hvítum flísum á veggjum, upphengdu salerni og hvítri innréttingu. Baðkar með sturtu og nýlegum blöndunartækjum og handklæðaofn.
Stór garður til suðurs sem út gengt er út í úr stofu. Húsið lítur mjög vel út og var í raun mikið tekið í gegn fyrir tæpum 20 árum. Nýlega hafa núverandi eigendur farið í jarðvegsskipti fyrir framan hús og lögðu snjóbræðslu og hellur. Einnig var skipt um nokkrar rennur. Fyrir liggja samþykktar teikningar af sólstofu og geymslu áfastri bílskúr sem myndi fylgja efri hæðinni. Þar sem komið er byggingaleyfi þá eru fermetrar þessara óbyggðu hluta inn í skráðri fermetra tölu íbúðarinnar. Íbúðin ein og sér er skráð 91,6fm.
Sjá nánar hér á samþykktri teikningurKostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.