RE/MAX og Jón Norðfjörð, lgf kynna útsýnis íbúð á fjórðu hæð í Vesturberginu. Eign með upprunalegar innréttingar sem býður upp á mikla möguleika.
Um er að ræða 63,7 fm íbúð á fjórðu hæð í snyrtilegu og vel við höldnu fjölbýlishúsi. Innréttingar eru upprunalegar, parket á gólfum og flísar á baðherbergi. Stórar snyrtilegar svalir með mögnuðu útsýni. Fellaskóli er spölkörn frá ásamt leikskóla og annarri almennri þjónustu, Fjölbraut í Breiðholti, World Class, Bónus, Mjóddin með alla sína þjónustu, strætó og fleira.
Nánari upplýsingar veitir Jón Norðfjörð löggiltur fasteignasali í síma 793-9919 eða á jon@remax.isHér getur þú skoðað eignina í 3D**Fáðu söluyfirlitið sent samstundis með því að smella hérNánari lýsing:Forstofa: Forstofa með innfeldum fataskáp í opnu rými,
Eldhús: Með upprunalegri innréttingu og frístandandi eldavél.
Stofa: Björt stofa með parketi á gólfi og hurð út á stórar snyrtilegar svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Sturtuklefi og tengingar fyrir þvottavél, flísar á gólfi.
Geymsla: er í sameign á jarðhæð 5,2 fm.
Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.
Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér eignina vel að innan sem utan og leita sér eftir atvikum ráðlegginga og aðstoðar sérfróðra manna við skoðun. Viðhald:Helstu endurbætur á eigninni:
* Austurhlið og suðurgafl, sprunguviðgerðir og klæddir 2009
* Nýir gluggar og útihurðir á austurgafli 2009
* Nýjar drenlagnir við austurhlið og suðurgafl 2010
* Þak og rennur endurnýjaðar 2013
* Sprunguviðgerðir og málun útveggja, tréverks og svala á vesturhlið og norðurgafli 2018
* Frárennslislagnir endurnýjaðar og fóðraðar 2023
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.