RE/MAX Ísland logo
Opið hús:03. sept. kl 17:30-18:00
Skráð 31. ágúst 2026
Söluyfirlit

Dúfnahólar 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
108.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
644.834 kr./m2
Fasteignamat
66.150.000 kr.
Brunabótamat
53.200.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2048524
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
6
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, yfirbyggðar
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is774-1477) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. (salvor@remax.is / 844-1421) KYNNA (english below):
Einstaklega rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi við Dúfnahóla 2 í Breiðholti með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Faxaflóa og til fjalla.

Helstu kostir
  • 108,4 m² 4ra herbergja íbúð á 6. hæð
  • Útsýnið er í algjöru aðalhlutverki
  • Rúmgóð fjölskyldueign með mikla möguleika
  • Gegnheilt fiskibeinaparket og nýlegir gluggar
  • Lyftuhús, yfirbyggðar svalir og sérgeymsla í kjallara
  • Frábær staðsetning – stutt í skóla, þjónustu og samgöngur
OG VIÐ KYNNUM NÝTT & SPENNANDI SAMSTARF VIÐ GALLERÍ FLÓ! 
Í tengslum við sölu eignarinnar sér Gallerí Fló alfarið um sölu á innbúi. Þar verður hægt að skoða og kaupa valda muni úr eigninni sérstaklega. Skoða innbúið hjá Gallerí Fló⁠


** SMELLTU HÉR fyrir EIGNAMÖPPU / SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS **
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Nánar um eign
Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð eignarinnar 108,4 m², þar af er íbúðin sjálf 102,9 m².  Íbúðin er vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og borðstofu, sér eldhúsi, baðherbergi, 6,4 m² yfirbyggðum svölum og góðri 5,5 m² sérgeymslu í kjallara. Eignin nýtur mikillar birtu og víðáttumikils útsýnis sem setur sterkan svip á stofu og borðstofu.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - MEÐ HÚSGÖGNUM
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN HÚSGAGNA


Nánari lýsing
Anddyri/hol:
Komið er inn í rúmgott parketlagt andyri með fataskáp og fatahengi. Úr holi er gengið inn í öll rými íbúðarinnar, svefnherbergisgang annars vegar og alrými hinsvegar. 
Stofa og borðstofa: Mjög rúmgott og bjart alrými með fallegu fiskibeinaparketi. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn og héðan nýtur eignin sín best með víðáttumikið útsýni yfir borgina, til sjávar og fjalla. Útgengi er að svölum frá borðstofu.
Eldhús: Rúmgott sér eldhús með innréttingu beggja vegna og góðu skápaplássi. Hvítir frontar eru paraðar við hlýlegan við og viðarborðplötur. Góð vinnuaðstaða og rými fyrir minni bor
Baðherbergi: Bjart og snyrtilegt endurgert baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi, upphengdur vaskaskápur með 2 skúffum og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Rafmagn og pípulagnir endurnýjaðar.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og miklum innbyggðum fataskápum eftir heilum vegg.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með eldri innbyggðum skápum og parketi á gólfi sem nær undir skápa. Góður gluggi sem nýr út í garð. Hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi.
Svefnherbergi III: Gott þriðja herbergi með parketi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Svalir: Svalir eru skráðar 6,4 m², eru yfirbyggðar og þaðan má njóta stórkostlegs útsýnis yfir borgina og nágrennið.
Sérgeymsla: Sérgeymsla í kjallara er 5,5 m². Í sameign er jafnframt þvotta- og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Húsið og viðhald
Húsið er steinsteypt fjölbýlishús frá 1974. Samkvæmt upplýsingum frá formanni húsfélagsins hefur verið ráðist í umfangsmikið viðhald síðustu ár, m.a. endurnýjun glugga, þaks og gangstétta ásamt nýrri uppbyggingu við svalir. Fyrirhugaður er síðar viðgerðarpakki vegna múrvinnu og málunar, en samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hefur sú framkvæmd ekki verið samþykkt né verið kallað eftir tilboðum í hana enn.
Nánar um viðhald - Húsfélagið Dúfnahólar 2-4:
2017 - Skipt um alla glugga garðmegin og settir í staðinn Rehau plastgluggar og einnig skift um útidyrahurðir bílastæða og garðmegin. Svalir ekki með í þessari framkvæmd.
2019 - Skipt um allar járnplötur á þaki hússins ásamt þakpappa og settar í staðinn Aluzink járnplötur og nýjar lofttúður settar og einnig fjölgað þakrennu rörum. Innviðir þaksins voru í góðu ásigkomulagi.
2020 - Skipt um gangstétt meðfram húsinu bílastæða megin og sett í staðin hellulögð stétt með snjóbræðslu undir. Einnig sett 2 metra breið og 16 metra löng snjóbræðsla undir hellu stéttina garðmegin í Dúfnahólum 2. sem nær frá tröppunum og að malbikuðu stéttinni. Affallið af hitaveituvatni hússins er nýtt til að hita upp stéttarnar.
2021 - Skipt um alla herbergis og eldhúsglugga bílastæða megin og settir í staðinn Rehau plastgluggar.
2025-2026 - Rifnar og fjarlægðar gamlar timbur og gler yfirbyggingar svala og byggðar nýjar úr stáli, áli, gleri,Viroc steypuplötum og steinull.
Húsfélagið Dúfnahólar 2
2023 - Skift um lyftu og sett ný Schindlers lyfta.
2024 - Innkomugangar að framan og bakvið málaðir.
2024 - Skift um alla ofna í sameign og í húsfélags íbúðinni.
2026 - Skift út gömlu dyrasímakerfi og sett upp mynddyrasímakerfi.

Samantekt
Rúmgóð fjölskyldueign á 6. hæð þar sem útsýnið er í algjöru aðalhlutverki. Þrjú svefnherbergi, góðar stofur, vandaðir innviðir, mikið skápapláss og stórir gluggar skapa bjarta og skemmtilega eign með mikla möguleika. Staðsetningin er jafnframt þægileg með skóla, leikskóla, verslun og fjölbreytta þjónustu og útivist í næsta nágrenni.

Athygli er vakin á því að eignin er hluti af dánarbúi og hafa erfingjar ekki búið í eigninni. Þeir geta því ekki veitt tæmandi upplýsingar um ástand hennar, búnað eða einstaka hluta. Kaupendur eru hvattir til að skoða eignina sérstaklega vel og kynna sér ástand hennar með ítarlegum hætti, eftir atvikum með aðstoð fagaðila, áður en tilboði er skilað.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
     Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is
     Salvör Þóra, lgf.í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is

     
-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum? Við tökum fagnandi við öllum tegundum eigna á skrá. 
Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 20 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband HÉR strax í dag og við aðstoðum þig/ykkur með glöðu geði :)

Hera Björk & Salvör Þóra, Löggiltir fasteignasalar

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Asparfell 10
111 Reykjavík
114.1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
586 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Krummahólar 4
111 Reykjavík
120.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
514
581 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Laugateigur 17
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
3
763 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Vindás 1
110 Reykjavík
104.8 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
412
692 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin