RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is / 774-1477 ) kynna: Vel skipulögð, rúmgóð og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3.hæð í reisulegu fjölbýlishúsi við Reykjavíkurveg 29.
Eignin getur verið laus við kaupsamning. ** SMELLIÐ HÉR fyrir ítarlegri upplýsingar og/eða bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **Nánar um eign: Eignin er 3ja herbergja íbúð á 2.hæð, merkt 220, samtals 88,7 m² að stærð og samanstendur af forstofu, góðu alrými (eldhús, borðstofa, stofa), tveim svefnherbergjum, baðherbergi og sér 9 m² geymslu í sameign í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu. Aðgengi að bílakjallara og rafhleðslustöðvum.
** SMELLTU HÉR og skoðaðu ÍBÚÐINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**Eignin er samtals 55,9 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og samanstendur af forstofu, stofu, eldhús, 1-2 svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu, sameiginlegu þvottahúsi, vagna- og hjólageymslu og fallega grónum garði.
Nánari lýsing: Forstofa: Með fallegum svarbrúnum fataskápum, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með suðurglugga, parket á gólfi.
Eldhús: Fallega innréttað eldhús með nýlegri dökkri eldhúsinnréttingu, spanhelluborð, Siemens ofn, innfelld vifta, vaskur og blöndunartæki, uppþvottavél fylgir, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fallegum svarbrúnum fataskápum og innbyggðum skúffueiningum sem falla inn í vegginn, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 /borðstofa: Inn af eldhúsi er herbergi sem hægt er að nýta sem herbergi eða stofu/ borðstofu, svartbrúnir veggskápar á vegg, parketlagt geymslurými undir súð að hluta, parket á gólfi.
Baðherbergi: Smekklega innréttað baðherbergi með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni, Fibo plötur á veggjum.
Geymsla: Er 5,3 m² í kjallara. Fyrir ofan stigapall íbúðar er op upp í sameiginlegt rúmgott geymsluloft.
Sameign: Með sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi og vagna- og hjólageymsla.
Lóð: Stór sameiginleg gróin lóð.
Gólfefni: Frá Parka.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan:* Endurnýjaðar raflagnir í eldhúsi og rafmagnstafla fyrir það.
* Endurnýjaðar vatnslagnir innan íbúðar
* Endurnýjaðar hitalagnir og ofnar innan íbúðar.
* Endurnýjuð eldhústæki; spanhelluborð, innfelld vifta, vaskur og blöndunartæki.
* Baðherbergi endurnýjað; sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, innréttingar, handlaug og blöndunartæki, klæðning á veggjum.
* Þær hurðir sem eftir eru hafa verið uppgerðar og var nýtt sýruþvegið gler sett í útihurð.
Endurnýjað að utan:* Þakjárn var allt endurnýjað árið 2011.
* Rafmagnstafla í sameign hefur verið endurnýjuð.
* Dyrasímar endurnýjaðir 2017.
Virkilega skemmtileg og vel skipulögð íbúð.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk löggiltur fasteignasali í síma
774-1477 eða á netfangið
herabjork@remax.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk