REMAX / Brynjar Ingólfsson MSc., löggiltur fasteignasali, kynnir bjart og vel skipulagt sumarhús á einum besta stað í Hraunborgum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið stendur við enda götunnar með mikilli víðáttu og útsýni.
Aðalhúsið er 50,4 fm með þremur svefnherbergjum og svefnlofti. Gestahúsið er 20 fm og eru húsin samtals 70,4 fm. Rúmgóður sólpallur með heitum potti tengir húsin saman.
Nánari lýsing Forstofan er með flísum á gólfi, fatahengjum og bekk. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Hátt er til lofts og stórir gluggar hleypa inn góðri birtu. Úr borðstofu er gengið út á sólpall. Eldhúsið er með dökkri innréttingu og glugga við vinnuborð. Svefnherbergin eru þrjú, öll með glugga. Gengið er inn í þau af gangi. Baðherbergið er með sturtuklefa, handklæðaofni, glugga og aðstöðu fyrir þvottavél. Svefnloftið er teppalagt og er aðgengt um stiga úr alrýminu.
Gestahúsið er 20 fm með sérinngangi. Þar er opið rými með svefnaðstöðu, borðkrók og innréttingu með vaski. Þar er einnig baðherbergi með sturtu.
Viðhald og endurbætur Sumarhúsið var upphaflega byggt árið 1989 og síðar flutt á núverandi stað. Undirstöður og rotþró eru frá árinu 2023. Samkvæmt seljanda var sumarhúsið stækkað um 10 fm fyrir um tveimur og hálfu ári. Ofnakerfi og lagnir hafa verið endurnýjuð að fullu og rafmagn að hluta.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is