Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herb. íbúð í lyftuhúsi að Stórakrika 2 í Mosfellsbæ. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Engin íbúð er fyrir ofan þessa íbúð og út frá stofu er gengið út á SV-svalir þar sem sólar nýtur við megnið af deginum. Útsýni er að Úlfarsfelli. Í Krikahverfinu er bæði leikskóli og grunnskóli. Einnig er stutt að fara í framhaldsskóla um göngubrú yfir vesturlandsveginn. Þar er einnig hægt að sækja ýmsar verslanir og þjónustu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 117,6 m2. Stæði í bílageymslu er ekki inni í fermetrafjölda eignar.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!Smelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing:
Forstofa er inn af snyrtilegri teppalagðri sameign. Lyfta er milli hæða og á stigapalli eru aðeins tvær íbúðir. Innan íbúðar er komið inn á flísalagt gólf. Eikarskápur fyrir yfirhafnir er á einum vegg.
Herbergi I er með tvöföldum skáp. Gluggar snúa til norðurs. Parket á gólfi.
Herbergi II er með léttum skáp með speglahurð. Gluggar snúa til norðurs. Parket á gólfi.
Herbergi III er inn af baðherbergi og snýr gluggi út í garð til suðurs. Viðarfataskápur fyllir einn vegg og ná allir skápar upp í loft. Parket á gólfi.
Stofa afar björt og er í opnu rými með eldhúsi. Útgengi er út á skjólgóðar
suður-svalir með útsýni að Úlfarsfelli. Möguleiki er á svalarlokun. Parket á gólfi stofu.
Eldhús er með "L" laga eikarinnréttingu. Á langvegg eru efri skápar og ná þeir upp í loft. Bakaraofn og helluborð og háfur fyrir ofan. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Opin eyja sem hægt er að sitja við. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuhengi. Hvít innrétting, auka skápaeining, upphengt salerni og hvítur handklæðaofn. Hvítar veggflísar að hluta og gráar gólfflísar með gólfhita.
Þvottahús er innan íbúðar. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borð og hillur. Gráar gólffísar.
Geymsla er rúmgóð og með rafmagnstengli. Málað gólf.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara. Virkilega snyrtileg sameign með epoxý á gólfum.
Bílageymsla er lokuð og upphituð. Viðkomandi íbúð er með stæði merkt íbúðinni. Búið er að setja rafmagn í bílakjallara og því möguleiki að setja upp rafmagnshleðslustöð í stæðið.
Ath. Hluti af innimyndum eru unnar með aðstoð gervigreindar og eru til að gefa fólki sýn á mögulegt skipulag á tómum eignum.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-