RE/MAX Ísland logo
Opið hús:25. feb. kl 17:00-17:30
Skráð 23. feb. 2026
Söluyfirlit

Vesturgata 55

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
50.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
48.900.000 kr.
Fermetraverð
960.707 kr./m2
Fasteignamat
48.750.000 kr.
Brunabótamat
23.450.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Salvör Þóra Davíðsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1957
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2000711
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Sjá aðalfundargerð dags. 20.01.2026
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá aðalfundargerð húsfélagsins dags. 20.01.2026.
Gallar
Eignin er skráð sem séreign 01-01 skv. þinglýstri eiganskiptayfirlýsingu frá 1994 og var búin til úr því rými sem ætlað var undir geymslur fyrir íbúðirnar og sameiginlegt þvottahús hússins og er því ekki samþykkt sem íbúð. Á lóðinni er einnig ósamþykktur skúr með matshlutanúmer 70-01-01 og er ekki inni í stærðarútreikningum í eigaskiptayfirlýsingu.
Salvör Þóra Davíðsdóttir, löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna::
Falleg og björt 2ja herbergja íbúð (ósamþykkt) á jarðhæð með skjólgóðri sameiginlegri hellilagðri verönd að bakatil í vel staðsettu, fjölbýli hannað af Sigvalda Thordarsyni, í 101 Reykjavík.

- Húsið og þakið málað sumarið 2018
- Ofnalagnir og neysluvatnslagnir, ca. 2023
- Teppi í sameign, 2025
- Sameign máluð, 2025

    3D - íbúð og garður
    3D - Íbúð án húsgagna og garður


Allar upplýsingar veitir Salvör Þóra Davíðsdóttir MBA, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 / salvor@remax.is 

    
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINNI **
    ** Hér getur þú fengið sent söluyfirlit samstundis **


Nánari lýsing:
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 50,9 fm sem skiptist í íbúð í kjallara/jarðhæð 49,3 fm (merkt 01-0101) og sérgeymslu í sameign 1,6 fm (merkt 01-0103). Eignin samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu (1,6 fm) í sameign. Lítil sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Skjólgóður sameiginlegur garður að bakatil sem er hellulagður og innangengur úr sameign. Stigagangur er sameiginlegur og er nýlega búið að skipta um teppi og mála hann.

Anddyri/hol: Komið er inn í anddyri/hol með fataskáp og þaðan er farið í önnur rými íbúðar.
Eldhús: Er með huggulegri innréttingu með góðu skápaplássi, borðkrók og gluggum með opnanlegu fagi. 
Stofa: Eru saman í opnu, björtu rými með útsýni og er útgengt út á ágætis svalir.
Herbergi: Er rúmgott og bjart með Rúmgott og bjart með opnum, innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, nettur hvítur vaskaskápur, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og gluggi með opnanlegu fagi.
Gólfefni íbúðar: Parket og flísar nema annað sé tekið fram.
Sér geymsla: Er í sameign á jarðhæð merkt 01-0103 og er skráð 1,6 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Lítil og er í sameign á jarðhæð.
Sameign: Er öll hin snyrtilegasta og er nýlega máluð og með nýlegu teppi. Úr sameign er farið út í hellulagðan, skjólgóðan sameiginlegan garð.
Garður: Hellulagður, skjólgóður sameiginlegur garður með steyptum veggjum er að bakatil.
Umhverfi: Snyrtilegt umhverfi og stutt að fara í alla helstu verslanir og þjónustu.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Salvör Þóra Davíðsdóttir MBA, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 / salvor@remax.is

-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Vakin er athygli á því að eignin er hluti af dánarbúi. Seljendur hafa ekki búið í eigninni og þekkja ekki ástand hennar umfram það sem kemur fram í opinberum gögnum. Seljendur hvetja því væntanlega kaupendur til að skoða eignina vel með það í huga.
-----------------------------------------------------------------
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu í yfir áratug. 
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag!
Salvör Þóra MBA, lgf. í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
_________________________________
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta þína eign þér að kostnaðarlausu


 
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin