NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 (milli kl.9 og 18 alla virka daga) EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu: KLETTABERG 48 – FJÖLSKYLDUHÚS MEÐ ÚTLEIGUEININGU OG FRÁBÆRRI ÚTIAÐSTÖÐUVirkilega gott og vel skipulagt 219,6 fm parhús auk 15fm geymsluskúrs við Klettaberg 48 í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Húsið stendur við rólega botnlangagötu og býður upp á 4 svefnherbergi í aðalíbúð, rúmgóð og björt alrými með mikilli lofthæð, fallegt útsýni og glæsilega útiaðstöðu með heitum og köldum potti, saunahúsi og útieldhúsi.
Á jarðhæð hússins er um 57,3 fm rými sem hefur verið innréttað til útleigu, með sérinngangi, stofu, eldhúsi, 1 svefnherbergi og baðherbergi. Rýmið er nú í útleigu samkvæmt gildandi leigusamningi með þriggja mánaða uppsagnarfresti.
HELSTU KOSTIR- Rúmgott fjölskylduhús: Fjögur svefnherbergi í aðalíbúð, björt alrými og falleg stofa og borðstofa með mikilli lofthæð.
- Útleigueining: Um 57,3 fm rými á jarðhæð, innréttað með eldhúsi, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Rýmið er nú í útleigu.
- Glæsileg útiaðstaða: Skjólgóð timburverönd með heitum og köldum potti, saunahúsi og setuaðstöðu.
- Rúmgóðar suðvestursvalir: Útieldhús með innbyggðu grilli, borðaðstaða og fallegt útsýni.
- Endurnýjuð innrými: Eldhús, baðherbergi, gestasnyrting og þvottahús hafa verið endurnýjuð.
- Góð geymsluaðstaða: Um 15 fm einangraður geymsluskúr við húsið, 3 kaldar geymslur og geymsluloft.
- Fjölskylduvænt umhverfi: Róleg botnlangagata í Setberginu, skammt frá skólum, leikskólum, íþróttaaðstöðu og útivistarsvæðum.
NÁNARI LÝSING EIGNARINNAR
1. HÆÐForstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með Quickstep-parketi á gólfi og góðum fataskáp. Inn af forstofunni tekur við gangur og hol sem tengja saman rými hæðarinnar.
Stofa og borðstofa: Glæsilegt, bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð og fallegu Quickstep-parketi á gólfi. Stofa og borðstofa mynda opið og skemmtilegt rými þar sem stórir gluggafletir hleypa náttúrulegri birtu inn. Úr stofunni er gengið út á rúmgóðar suðvestursvalir með fallegu útsýni. Á svölunum er útieldhús með innbyggðu grilli og borðaðstöðu.
Eldhús: Opið við stofu og borðstofu, með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og rúmgóðri eyju með helluborði. Í eldhúsinu eru tveir bakarofnar í vinnuhæð, annar þeirra einnig örbylgjuofn, ásamt tvöföldum ísskáp með vatns- og klakavél. Eldhúsið er bjart og vel skipulagt og tengist borðstofunni á skemmtilegan hátt.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með Quickstep-parketi á gólfi.
Gestasnyrting: Endurnýjuð með fallegri innréttingu, veggfestu salerni og flísum á gólfi.
Þvottahús: Með góðri innréttingu og vinnuaðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð.
2. HÆÐGengið er upp teppalagðan stiga á efri hæðina. Frá stigapalli er útgengt á skjólgóða timburverönd aftan við húsið.
Svefnherbergi II: Rúmgott og bjart herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskápum.
Svefnherbergi III: Rúmgott herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi IV: Skemmtilegt barnaherbergi með háalofti sem hefur nýst sem leiksvæði eða aukasvefnpláss.
Baðherbergi: Endurnýjað baðherbergi með rúmgóðri innréttingu, veggfestu salerni, baðkari, sturtu og handklæðaofni. Gólf eru flísalögð og með gólfhita. Yfir baðherberginu er geymsluloft sem nýtist sem viðbótargeymsla.
JARÐHÆÐ – RÝMI INNRÉTTAÐ TIL ÚTLEIGUÁ jarðhæð hússins hefur um 57,3 fm rými verið innréttað til útleigu, með sérinngangi, stofu, eldhúsi, 1 svefnherbergi og baðherbergi.
Rýmið er bjart og snyrtilegt, með ljósum gólfefnum og samræmdu yfirbragði.
Stofa og eldhús: Opið og bjart alrými með ljósum gólfefnum. Eldhúsið er með hvítri innréttingu, dökkri borðplötu, helluborði, bakarofni, háf og uppþvottavél. Í rýminu er aðstaða fyrir sófa og borðstofuborð.
Svefnherbergi: Bjart svefnherbergi með ljósu gólfefni og aðstöðu fyrir rúm og fataskáp.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með hvítri vaskinnréttingu, veggfestu salerni og sturtu. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Rýmið er nú í útleigu samkvæmt gildandi leigusamningi með þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Upplýsingar um skráningu bílskúrs: Rýmið er skráð sem 58 fm bílskúr í fasteignaskrá HMS. Breyting þess í íbúðarrými hefur ekki verið lögð fyrir byggingarfulltrúa til samþykktar. Núverandi nýting rýmisins til útleigu felur því ekki í sér staðfestingu á samþykktri íbúðarnotkun. Þessi texti birtist aðeins þeim sem óska eftir söluyfirliti, fer ekki á netið
GLÆSILEG ÚTIAÐSTAÐAÚtiaðstaða hússins er einn af helstu kostum eignarinnar. Á skjólgóðri timburverönd aftan við húsið eru heitur og kaldur pottur ásamt saunahúsi. Þar er einnig setuaðstaða, skjólveggir og gott rými til útiveru og slökunar. Á veröndinni er jafnframt leikkofi fyrir börn og setusvæði með útsýni.
Svalir: Úr stofu er gengið út á rúmgóðar suðvestursvalir þar sem komið hefur verið fyrir útieldhúsi með innbyggðu grilli og borðaðstöðu. Gólf svalanna eru klædd viðhaldslitlum gólffjölum.
GEYMSLUSKÚR OG GEYMSLURVið hlið hússins er um 15 fm einangraður geymsluskúr sem samkvæmt fyrra söluyfirliti var byggður árið 2023. Skúrinn er með sérinngangi, opnanlegum glugga og rafmagni. Gólfið er málað og þar er góð aðstaða til geymslu á hjólum, dekkjum, verkfærum og öðrum búnaði. Einnig eru 3 kaldar geymslur og geymsluloft innanhúss. Við skúrinn er sérsmíðað ruslatunnuskýli. Geymsluskúrinn er ekki innifalinn í skráðri stærð fasteignarinnar.
VIÐHALD OG ENDURBÆTURFyrri endurbætur - Samkvæmt fyrra söluyfirliti hefur húsið verið endurnýjað á undanförnum árum. Meðal endurbóta eru endurnýjun eldhúss, baðherbergis, gestasnyrtingar og þvottahúss, ásamt endurnýjun gólfefna í hluta hússins. Skipt var um gler í gluggum á framhlið hússins árið 2023. Í stofu og alrými eru sólarrúllugardínur frá Sólar og í svefnherbergjum myrkvunargardínur á Z-brautum.
Útisvæðin hafa einnig verið endurbætt með timburpöllum, heitum og köldum potti, saunahúsi, skjólveggjum og útieldhúsi.
Framkvæmdir árið 2025Nýir gólflistar settir upp.
Nýtt parket lagt á efri hæð.
Allir gluggar málaðir að innan.
Stigi teppalagður.
Innihurðir og karmar málaðir.
Framkvæmdir árið 2026Handrið málað að utan.
Bílskúrsrými skipt upp í útleigueiningu ásamt hitakompu.
Fataskápum bætt við í forstofu og við hlið baðherbergis.
FYLGIFÉSamkvæmt upplýsingum seljenda fylgir eigninni meðal annars:
- Tvöfaldur ísskápur með vatns- og klakavél.
- Uppþvottavél.
- Innbyggt útigrill.
- Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
STAÐSETNING OG NÆRUMHVERFIKlettaberg 48 stendur við rólega botnlangagötu í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Umhverfið er fjölskylduvænt og stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, leikvelli og falleg útivistarsvæði.
Verslanir og önnur helsta þjónusta eru í þægilegri fjarlægð.
Klettaberg 48 er rúmgott og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem saman fara björt og falleg íbúðarrými, glæsileg útiaðstaða og viðbótarrými á jarðhæð sem nú er nýtt til útleigu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 af hverju skjali.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 69.900 kr. með vsk.