RE/MAX Ísland logo
Opið hús:21. ágúst kl 16:00-17:00
Skráð 18. ágúst 2025
Söluyfirlit

Kaldakinn 10

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
105.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
739.089 kr./m2
Fasteignamat
70.000.000 kr.
Brunabótamat
50.300.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1947
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2076573
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýlegt í bílskúr, en upprunalegt í húsi.
Raflagnir
Ekki vitað hvað hefur verið gert, en tafla í kjallara hefur verið endurnýjuð..
Frárennslislagnir
Skólp endurnýjað úr bílskúr og út í götu 2018. Þá var skólp undir húsi metið í lagi.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta, annað upprunalegt.
Þak
Endurnýjað þakjárn á húsi ca 2008 og á bílskúr 2020.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Eitt og annað í frágangi þarf að klára. Vantar rúðu í bílageymslu.
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli að Kaldakinn 10 í Hafnarfirði. Sér inngangur er inn í íbúð og henni fylgir bílgeymsla sem búið er að útbúa íbúð í til útleigu. Garður er stór og gróinn. Útgengi er út úr stofu út á pall og garð til suðurs. Beggja megin við hús eru sér bílastæði eignar. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig í Flensborgarskóla og niður í miðbæ Hafnarfjarðar. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 105,4 m2. 


**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN FIMMTUD. 21. ÁGÚST
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa er inn af steyptum tröppum. Sér inngangur. Snjóbræðslulagnir eru í stigapalli og tröppum og hægt að tengja inn í grind. Forstofa er með tvöföldum skáp. Gólf er flísalagt. Inn af forstofu er gengið niður í kjallara. 
Baðherbergi er inn af forstofu og er með skápaeiningu undir handlaug, salerni og baðkari með sturtuhengi. Veggfestur speglaskápur. Opnanlegt fag á glugga. Gráar gólfflísar. 
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru hvítar veggflísar. Gluggi snýr út að götu til norðausturs. Gott gólfpláss fyrir eldhúsborð og stóla. Inn af eldhúsi er annað svefnherbergið. Parket á gólfi.
Stofa er björt með glugga á A-gafli húss. Einnig eru gluggar og útgengi út í garð til suðurs. Parket á gólfi. 
Herbergi I er inn af eldhúsholi og er það herbergi stærra en hitt. Engir fataskápar. Parket á gólfi.
Herbergi II er inn af holi íbúðar og með glugga út í garð til suðurs. Engir fataskápar. Getur þetta herbergi einnig nýst sem vinnuherbergi. Parket á gólfi.
Þvottahús er í kjallara. Stæði og tengi. Lofthæð er ca 180 cm. Steypt gólf og niðurfall. Útgengi er að kjallaratröppum.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Bílgeymsla er innréttaður í dag sem 2ja herb. íbúð. Gluggar eru út í garð til suðausturs. Hurð er út í garð. Einnig er hurð inn af innkeyrslu við götu. Birt stærð er 38,2 m2.
Útidyratröppur niður í kjallara hafa verið múrviðgerðar og þar eru einnig snjóbræðslulagnir og hægt að tengja inn í grind.

Eigandi hefur ekki búið í eigninni og er því kaupandi hvattur til að skoða eignina vel.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Byggt 1947
38.2 m2
Fasteignanúmer
2076573
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
13.000.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Þrastarás 14
221 Hafnarfjörður
94.1 m2
Fjölbýlishús
413
796 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Stuðlaskarð 13
221 Hafnarfjörður
106.5 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
746 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Suðurvangur 8
220 Hafnarfjörður
113 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
514
698 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin