RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum löggiltum fasteignasölum kynna:Einstaklega rúmgóða og fjölskylduvæna eign á frábærum útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin er alls 314,7m² á tveimur hæðum með tvöföldum góðum bílskúr, stórum og björtum stofum, fallegum suðurgarði og 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð (á sér fastanúmeri).
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald innan sem utan. Staðsetning er einstaklega góð þar sem það stendur innst í botnlanga við opið og gróið svæði og nýtur fallegs útsýnis og eru góðir skjólveggir í fallegum garðinum.* Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er samtals kr. 213.800.000.- *Helstu kostir eignarinnar- Rúmgóð og fjölskylduvæn eign á tveimur hæðum.
- Staðsett innst í botnlanga við opið og gróið svæði með fallegu útsýni yfir Kópavog, til Bláfjalla og Suðurnesja.
- Stórar og sólríkar svalir til suðurs og skjólgóðar verandir og notalegt útisvæði.
- Bjartar stofur með stórum gluggum og arni.
- Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi.
- Möguleiki á fjórða svefnherberginu í stærri íbúðinni.
- Tvö rúmgóð baðherbergi í aðalíbúð.
- 62,1 fm, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð og er hún á
sér fastanúmeri- Tvöfaldur 43,4 m² bílskúr með góðri vinnuaðstöðu fylgir stærri eigninni á fastanúmeri og er snjóbræðsla á bílaplani, stéttum og í tröppum
- Gróinn, afgirtur og skjólgóður suðurgarður
- Húsið málað að utan árið 2025.
* VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN! Íbúð 0201 - -
Íbúð 0101*** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI -
ÁN HÚSGAGNA 0201 - -
ÁN HÚSGAGNA 0101---------------------------------------------
Viðhald og endurbætur2010 – Flísar í eldhúsi.
2012 – Gler í stofu á efri hæð endurnýjað með einangrunargleri.
Skipt hefur verið um gler í flestum opnanlegum fögum á suðurhlið.
Skipt um gler í gluggum hjónaherbergis og svefnherbergis til suðurs á efri hæð.
2016 – Baðherbergi og forstofa endurnýjuð, m.a. gólfhiti.
2017 – Þak pússað upp og málað.
2020 – Fiskibeinaparket á efri hæðinni pússað, litað og lakkað.
2021 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.
2023 – Skipt um öll nema ein blöndunartæki á baðherbergjum og eldhúsum í báðum íbúðum. Þessi einu eru til og fylgja með.
2025 – Húsið málað að utan; steyptir veggir, gluggakarmar, hurðar og þakkantur. Austurgafl er eftir.
2025 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.
2025 – Tröppur á vesturhlið hússins lagfærðar, múraðar og yfirborðsmeðhöndlaðar til vatnsvarnar.
--------------------Nánari lýsingHúsið var byggt árið 1987 og er skráð í heild sinni 314,7 fm samkvæmt Fasteignaskrá HMS, þar af er hluti eignar með fastanúmeri F2062072 samtals 252,6 fm sem skiptist í íbúðarhluta 209,4 fm og tvöfaldur bílskúr 43,4 m², en hluti eignar með fastanúmeri F2062071 er 62,1 fm íbúð á neðri hæð með sérinngangi. Í dag er hurð á milli eignanna en hægt að loka endanlega fyrir það. Íbúðin á jarðhæðinni er í útleigu.
Efri hæðForstofa: Flísalögð með gólfhita. Forstofan var endurnýjuð árið 2016.
Stofa/borðstofa: Einstaklega bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum og fallegu útsýni. Útsýni er yfir Kópavog, til Bláfjalla í austri og Suðurnesja í suðri. Setustofa með arni liggur samhliða borðstofu og úr borðstofunni er gengið út á stórar og sólríkar svalir til suðurs.
Eldhús: Rúmgott með eikarinnréttingu og góðu skápa- og vinnuplássi. Tveir ofnar, spanhelluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar eru á tvo vegu og góður borðkrókur. Innrétting/skápur í hálfri hæð skilur eldhús og borðstofu að hluta en viðheldur um leið góðu flæði milli rýmanna.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru á hæðinni. Annað er rúmgott með góðum gluggum til suðurs og hitt er staðsett inn af forstofu.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2016. Flísalagt með gólfhita, sturtuklefa, innréttingu með handlaug og skápum, upphengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi.
Gegnheilt eikarparket með fiskibeinamunstri er á stofum, holi og stærra svefnherberginu. Fljótandi parket er á minna svefnherberginu og flísar á eldhúsi.
Bílskúr: Innangengt er um gang og eldvarnarhurð í tvöfaldan bílskúr. Þar eru góðir gluggar til austurs og suðurs, vinnubekkur með vaski, heitt og kalt vatn og góð vinnuaðstaða. Epoxy er á gólfi.
Neðri hæð:
Hjónasvíta: Rúmgóð og sérlega vel skipulögð. Þar er gangur með miklu skápaplássi, stórt hjónaherbergi með gluggum út í garð og fataherbergi með lokuðum skápum.
Sjónvarpsstofa/hol: Rúmgott og notalegt fjölskyldurými með gluggum til suðurs. Rýmið býður jafnframt upp á möguleika á fjórða svefnherberginu. Útgengt er á pall/verönd og þaðan í afgirtan, gróinn og skjólgóðan suðurgarð.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt með sturtuklefa, baðkari, innréttingu með tveimur handlaugum og góðum skápum. Gluggi er með opnanlegu fagi og útgengt á pall þar sem tilvalið er að koma fyrir heitum potti.
Þvottahús: Góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavélar í vinnuhæð, vinnubekk, vaski og góðu vinnuplássi.
Geymsla: Rúmgóð með miklu hilluplássi og tengi fyrir frystiskáp.
2ja herbergja íbúð á neðri hæð (með sér fastanúmer)Á vesturhlið hússins er 62,1 m² íbúð með sérinngangi.
Forstofa: Flísalögð. Hiti er í stétt fyrir framan innganginn.
Stofa: Opin og björt með stórum gluggum til suðurs og útsýni út í garðinn. Einnig er gluggi til vesturs. Stofan tengist miðrými/holi með góðum skápum.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum og glugga til suðurs út í garðinn.
Eldhús: Eikarinnrétting, eldavél með innbyggðum bakaraofni og gluggi til vesturs. Há borðplata sem hægt er að sitja við.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2018. Flísalagt með innréttingu, sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Fljótandi harðparket er á stofu, svefnherbergi og eldhúsi.
Geymsla: Lítil útigeymsla fyrir hjól og annað smálegt er undir tröppum við inngang íbúðarinnar.
Garður og útisvæðiGarðurinn er gróinn, fallegur og afgirtur bæði að austan og vestan og því afar skjólsæll. Meðfram húsinu til suðurs er hellulögð/timburklædd verönd og góð tenging er milli innri og ytri rýma.
Í garðinum er einnig rúmgóð útigeymsla sem tilheyrir aðalíbúðinni og rúmar vel garðhúsgögn, hjól og annan búnað.
Snjóbræðsla er á bílaplani fyrir framan bílskúrshurðir, undir hellulögðum stéttum fyrir framan húsið og í tröppum vestan megin við húsið niður í garð og að íbúðinni.
StaðsetningEignin stendur á góðum og rólegum stað innst í botnlanga við opið svæði. Kópavogsdalurinn og græn útivistarsvæði eru í næsta nágrenni ásamt fallegum gönguleiðum. Ekkert hús stendur fyrir innan eignina við götuna.
Einstaklega rúmgóð og fjölskylduvæn eign með miklu útsýni, góðum útisvæðum, tvöföldum bílskúr og sér 2ja herbergja íbúð. Eign sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir stóra fjölskyldu, auk möguleika á leigutekjum.
Hjallarnir er eftirsótt og gróið hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir auk góðra samgangna. Svæðið sameinar nútímalegt borgarumhverfi og fallega náttúru með sjóinn og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Eignin býður upp á einstaklega aðlaðandi kosti fyrir þá sem gera kröfur bæði um gæði og þægindi.
Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Björk Davíðs, lgf., í síma 862-1914 eða á thordis@remax.is
Salvör Þóra Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is
---------------------------------------------------------------Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -
sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
ERT ÞÚ Í FASTEIGNAHUGLEIÐINGUM? Veistu ekki hvort þú eigir að fara af stað með þína eign og þú ekki búin/n að finna aðra??Við kíkjum til þín í spjall og förum yfir málin saman! Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug og leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir bæði seljendur og kaupendur.Hafðu samband í dag! - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is