Ég hef starfað við sölu fasteigna frá ágúst 2011 og er því reynsla mín komin vel á annan tuginn.
Kjósið þið að velja mig sem ykkar fasteignasala þá mun ég vinna ötullega að því að fá hæsta verð mögulega fyrir ykkar eign með því að nota fagljósmyndara og einnig fæ ég þrívíddar myndatöku fyrir allar eignir sem eru hjá mér. 3D myndataka af húsinu og fyrir utan ef veðurskilyrði leyfa. Þannig geta þeir sem áhuga hafa á eigninni skoðað hana nánar á þeim link sem við gefum upp og gengið um eignina í gegnum sín tæki - síma/ tölvu eða ipad. Tæknin er að vinna með okkur þannig að fólk getur skoðað eignirnar virkilega vel áður en ákvörðun er tekin um að mæta á staðinn til skoðunar og eða bara ef það vill skoða enn betur eftir heimsókn í sýningu á eigninni.
Utan vinnutímans á ég mér þó einhver áhugamal. Til að mynda spila ég golf, aðeins farin að prófa stangveiði, horfa á spennandi leiki í körfubolta, handbolta og fótbolta, en svo er það fjölskyldan og barnabörnin sem eru orðin fjögur.
Ég er Árbæingur í grunninn en fluttist í Grafarvoginn árið 2002 eftir að hafa verið búsett erlendis meira eða minna í 10 ár. Í dag er ég búsett í Seljahverfinu og líkar það sérlega vel.
Mig hlakkar til að heyra frá þér/ykkur. Það er alltaf gott að muna, að það kostar ekkert fá mig í verðmat og spjall ef einhverjar hugleiðingar eru varðandi hvað skal gera og hvenær.
Ég tel mig vera góðan kost fyrir þig / ykkur.