OPIÐ HÚS 19. JÚLI KL. 14.00 TIL 14.30 Magnús Már Lúðvíksson lgf. kynnir í einkasölu einstakt parhús eftir arkitektinn Vífil Magnússon. Það er sjaldgæft að eignir eftir hann komi á markað og nú gefst tækifæri til að eignast einstaklega skemmtilegt og vel skipulagt sex herbergja parhús. Húsið er með innbyggðum bílskúr á frábærum stað við rólega botnlangagötu í Krókamýri 70 í Garðabæ. Arkitektinn er eins og áður segir Vífill Magnússon og ber eignin skýran og auðþekkjanlegan svip arkitektsins þar sem sterk form, hallandi þak og markviss notkun loftglugga skapa einstakt yfirbragð. Þríhyrnings og tíglaform setja mikin svip á hönnunina. Dagsbirtan og skuggarnir breyta ásýnd rýmanna yfir daginn og aukin lofthæð og gluggar gera alrýmið sérstaklega bjart og skemmtilegt. Eignin býður jafnframt upp á sólríkan pall með heitum potti og einstaklega fjölskylduvæna staðsetningu þar sem göngustígar liggja að grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, leiksvæðum og sundlaug án þess að fara þurfi yfir umferðargötu. Eignin er skráð samkvæmt HMS alls 183,6 fm, þar af er innbyggður bílskúr 42 fm. Gólfflötur eignarinnar er þó meiri en skráðir fermetrar gefa til kynna þar sem þakið er hallandi. Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali, 699-2010 / maggi@remax.is
Nánari lýsing Efri hæð Anddyri sem hægt er að loka af frá aðalrými með stórri hurð. Gestasalerni sem er inn af anddyri er með upphengdu salerni, handlaug úr ryðfríu stáli og flísum á gólfi. Óvenju rúmgott hol með flísum á gólfi og útgengi út á steyptar svalir sem snúa að garði. Eldhús með eyju, granítborðplötum, helluborði, innbyggðri uppþvottavél, plássi fyrir tvöfaldan ísskáp og ofni í vinnuhæð. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með aukinni lofthæð þar sem gluggasetning og þakform gera dagsbirtunni kleift að flæða um rýmið. Stigi liggur úr stofu niður á neðri hæð. Gegnheilt parket og Mustang-náttúruflísar á gólfum. Neðri hæð Rúmgott sjónvarpshol með flísum á gólfi. Baðherbergi með innangengri sturtu, opnanlegum glugga, upphengdu salerni, flísum á veggjum og gólfi og útgengi út á stóran sólpall með heitum potti. Fjögur herbergi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Tvö barnaherbergi með gegnheilu parketi. Samkvæmt teikningum á fjórða herbergið að vera baðherbergi en það hefur verið nýtt sem skrifstofa. Innbyggður og mjög rúmgóður bílskúr, skráður 42 fm, með innangengi. Hluti hans hefur verið nýttur sem þvottahús og geymsla. Þvottahús með glugga með opnanlegu fagi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flotuðu gólfi og góðri lofthæð. Stór og afgirtur sólpallur. Gróin garður og falleg og stór tré fyrir framan hús. Þakrúður og álrammar var endurnýjað 2026 ásamt því að parket á efri hæð var slípað og lakkað. Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem sjaldan koma eignir í sölu. Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eru í um fimm mínútna göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu.
Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali, 699-2010 / maggi@remax.is