RE/MAX Ísland logo
Opið hús:19. júlí kl 14:00-14:30
Skráð 13. júlí 2026
Söluyfirlit

Krókamýri 70

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
183.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
816.449 kr./m2
Fasteignamat
142.700.000 kr.
Brunabótamat
101.250.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Magnús Már Lúðvíksson
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1994
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2217926
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
OPIÐ HÚS 19. JÚLI KL. 14.00 TIL 14.30
Magnús Már Lúðvíksson lgf. kynnir í einkasölu einstakt parhús eftir arkitektinn Vífil Magnússon.
Það er sjaldgæft að eignir eftir hann komi á markað og nú gefst tækifæri til að eignast einstaklega skemmtilegt og vel skipulagt sex herbergja parhús.
Húsið er með innbyggðum bílskúr á frábærum stað við rólega botnlangagötu í Krókamýri 70 í Garðabæ.
Arkitektinn er eins og áður segir Vífill Magnússon og ber eignin skýran og auðþekkjanlegan svip arkitektsins þar sem sterk form, hallandi þak og markviss notkun loftglugga skapa einstakt yfirbragð.
Þríhyrnings og tíglaform setja mikin svip á hönnunina. Dagsbirtan og skuggarnir breyta ásýnd rýmanna yfir daginn og aukin lofthæð og gluggar gera alrýmið sérstaklega bjart og skemmtilegt.
Eignin býður jafnframt upp á sólríkan pall með heitum potti og einstaklega fjölskylduvæna staðsetningu þar sem göngustígar liggja að grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, leiksvæðum og sundlaug án þess að fara þurfi yfir umferðargötu.
Eignin er skráð samkvæmt HMS alls 183,6 fm, þar af er innbyggður bílskúr 42 fm. Gólfflötur eignarinnar er þó meiri en skráðir fermetrar gefa til kynna þar sem þakið er hallandi.

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali, 699-2010 / maggi@remax.is

Nánari lýsing
Efri hæð

Anddyri sem hægt er að loka af frá aðalrými með stórri hurð.
Gestasalerni sem er inn af anddyri er með upphengdu salerni, handlaug úr ryðfríu stáli og flísum á gólfi.
Óvenju rúmgott hol með flísum á gólfi og útgengi út á steyptar svalir sem snúa að garði.
Eldhús með eyju, granítborðplötum, helluborði, innbyggðri uppþvottavél, plássi fyrir tvöfaldan ísskáp og ofni í vinnuhæð.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með aukinni lofthæð þar sem gluggasetning og þakform gera dagsbirtunni kleift að flæða um rýmið.
Stigi liggur úr stofu niður á neðri hæð.
Gegnheilt parket og Mustang-náttúruflísar á gólfum.
Neðri hæð
Rúmgott sjónvarpshol með flísum á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, opnanlegum glugga, upphengdu salerni, flísum á veggjum og gólfi og útgengi út á stóran sólpall með heitum potti.
Fjögur herbergi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Tvö barnaherbergi með gegnheilu parketi. Samkvæmt teikningum á fjórða herbergið að vera baðherbergi en það hefur verið nýtt sem skrifstofa.
Innbyggður og mjög rúmgóður bílskúr, skráður 42 fm, með innangengi. Hluti hans hefur verið nýttur sem þvottahús og geymsla.
Þvottahús með glugga með opnanlegu fagi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flotuðu gólfi og góðri lofthæð.
Stór og afgirtur sólpallur. Gróin garður og falleg og stór tré fyrir framan hús.
Þakrúður og álrammar var endurnýjað 2026 ásamt því að parket á efri hæð var slípað og lakkað.

Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem sjaldan koma eignir í sölu.
Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eru í um fimm mínútna göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu.


Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali, 699-2010 / maggi@remax.is
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Axlarás 35
221 Hafnarfjörður
237.6 m2
Raðhús á tveimur hæðum
726
589 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Tangabryggja 13
110 Reykjavík
191 m2
Fjölbýlishús með lyftu
623
759 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús á tveimur hæðum
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Opna eign
Til leigu
3D Sýn
Image
Opna eign
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
159.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin