RE/MAX Ísland logo
Opið hús:12. okt. kl 13:30-14:30
Skráð 9. okt. 2025
Söluyfirlit

Kóngsbakki 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
104 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
662.500 kr./m2
Fasteignamat
58.150.000 kr.
Brunabótamat
50.050.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1970
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2048359
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta 2018
Raflagnir
Endurnýjaðar í íbúð 2018
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
yfirfarnir og málaðir 2024/25. 3 ný gler.
Þak
Yfirfarið 2024/25, sjá fundargerðir
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já - SV - svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Engar samþykktar framkvæmdir á dagskrá umfram þær sem eru yfirstandandi og að ljúka núna. Seljandi hefur lokið greiðslum þar.
Úr húsfélagsyfirlýsingu og fundargerðum: 
1. Umræðu um rafhleðslustöðvar á lóð var frestað til umræðu og skoðunar fyrir aðalfund 2026 /
2. Frárennslislagnir eru upprunalegar og voru myndaðar í fyrra. Ekkert ákveðið hvenær farið verður í að fóðra /endurnýja þær, en er í skoðun hjá stjórn að fá betri stöðu á þeim og tilboð. 
3. Endurnýjiun svalahandriða, hvort eigi að mála og halda við eða skipta yfir í stálhandrið á einhverjum tímapunkti. 
Önnur umræðuefni sem hafa komið upp í umræðum á fundum: 
4. Umræðupunktur kom frá íbúa um að gott væri að setja hita í stétt við ruslageymslu og handrið. Í framtíðarsýn hússins er að koma fyrir djúpgámum eða utanhússgerði fyrir sorp.
Gallar
Borðplata í þvottaherbegi er aðeins upphleypt á 2 stöðum við borðbrún (lítilvægt og verið svona frá því núverandi eigendur keyptu fyrir 5 árum)
Ein smáskemmd í parketi sýnileg framan við eyju, lítið áberandi og truflar ekki ásýnd.
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna í einkasölu: Kóngsbakki 5, 109 Reykjavík.
Endurnýjuð, björt og einstaklega vel skipulögð 5 herbergja 104 fm íbúð á 2. hæð í góðu 3ja hæða fjölbýlishúsi með skjólgóðum og sólríkum suðvestursvölum og sameiginlegum inngangi. Íbúðin var öll uppgerð árið 2018 og nú er verið er að ljúka stórum framkvæmdum á veðurkápu hússins  þar sem allir gluggar  og gler voru yfirfarnir og endurnýjað þar sem þurfti, múrverk lagað og málað ásamt því sem þakið var yfirfarið (sjá gögn húsfélags). Sameign er mjög snyrtileg og eru næg bílastæði.  Mjög góð staðsetning í Bökkunum þar sem stutt er í góð útivistarsvæði, alla þjónustu og samgöngur. Fasteignamat 2026 verður 64.250.000. Íbúðin getur verið laus fljótlega.

Heildarstærð eignar:
Uppgefin heildarstærð hjá HMS er 104 fm, þar sem íbúðin er 94,3 fm og sérgeymsla í kjallara er 9,7 fm. Núverandi skipulagi hefur verið breytt frá upphaflega samþykktum teikningum,var 4 herbergja en er nú 5 herbergja.

     **SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST HÉR**

     **SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍDD OG NJÓTTU ÞESS AÐ GANGA UM HANA HEIMA OG MÁTA ÞIG VIÐ HANA**
     (Þú getur fjarlægt allt innbú með aðstoð gervigreindar með því að ýta á stólinn neðst til vinstri er kominn inn í þrívíddarsýnina) 


Núverandi skipulag: 
Alrými með forstofu, stofu, borðstofu og eldhúsi, svalir, 4 svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymsla í kjallara. 

Nánari lýsing eignar: 
Fallegar hvítar innréttingar og fataskápar frá IKEA, harðparket frá Birgisson á gólfum, dökkar flísar og mosaík flísar á baði og þvottahúsi. Innihurðar eru hvítar, yfirfelldar frá Parka.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með góðum þreföldum hvítum fataskáp á hægri hönd. Opið við alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. 
Eldhús í alrými:  Hvít L laga háglans innrétting með eyju, svört borðplata og svartur vaskur. Plötur með flísa-marmaraáferð eru á milli efri og neðri skápa, dimmanleg ikea lýsing undir efri skápum í innréttingu, innbyggð lýsing í lofti við innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, span helluborð og fjölkerfa bakarofn. 
Stofa/Borðstofa í alrými: Er björt og rúmar vel stofu og borðstofu. Útgengi er á góðar 5,7 fm suðvestur svalir sem snúa inn í góðan gróinn garð með góðri yfirsýn yfir leiksvæði. Gráar og svartar plastflísar (lausar) fylgja með.
gangur: tengir saman þrjú af fjórum svefnherbergjum, bað og þvottahús. 
Baðherbergi: Flísalögð walk-in sturta með glæru sturtugleri. Upphengt salerni og handlaug í hvítri innréttingu með 2 skúffum. Gólfflísar eru á hluta veggja, salerniskassa og gólfi. 
Þvottaherbergi: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, stálvaskur er í borðplötu sem er L- laga. Vegghengdur skápur og snúruhengi í lofti ofan borðplötu.
Herbergi 1: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp eftir einum vegg. 
Herbergi 2: Rúmgott með gluggum á einum vegg og er hluti gluggans hólf í gólf. Útskot er í herberginu sem getur nýst sem nett fataherbergi eða fyrir rúm/vinnuaðstöðu.
Herbergi 3: minnsta herbergið. Er skrifstofa í dag, en getur vel nýst sem nett svefnherbergi.
Herbergi 4: Rúmgott með góðum fataskáp.
Sérgeymsla: Er staðsett í kjallara, uppgefnir fm eru 9,7 fm. Rúmgóð með hillum eftir einum vegg.  
Sameign: Þurrkherbergi og ræstingarými er í kjallara. Á jarðhæð er vagna/kerrugeymsla gegnt inngangi sem er flísalagður og síðan er rúmgóð hjólageymsla með sérinngangi frá lóð við tröppur frá bílastæði. Stigahús er teppalagt. Nýr dyrasími er í stigahúsinu. 

Framkvæmdasaga í tíð núverandi eigenda:
2025:
Dyrasímakerfi í stigahúsi endurnýjað.
2024-2025: (Yfirstandandi framkvæmdir á lokastigi á ytra birði húss) hús og tréverk málað, þak yfirfarið, glugga/glerskipti eftir þörfum o.fl.  
2024: Lausar Ikeaplastflísar settar á svalirnar
Framkvæmdasaga fyrri eigenda (skv söluyfirliti 2020 er núverandi eigendur keyptu íbúðina)
2018: Allar innréttingar endurnýjaðar, blöndunartæki, eldhústæki,raflagnir í íbúð og vatnslagnir að hluta. 

Göngufæri er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla og verslanir í nærumhverfi. Nettó er bæði í Seljahverfinu og Mjódd.  Stutt ganga er í góðar almenningssamgöngur í Mjódd sem og strætó 12 sem stoppar enn nær og gengur alla leið niður í bæ og stutt leið er á stofnæðakerfi höfuðborgarsvæðisins. Fallegt gróið útivistarsvæði í nærumhverfi og stutt er í paradísina í Elliðaárdal og lítið lengra inn í Kópavogsdal. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur  s. 897 7712 og í netfangi gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður  s. 822 5124 og í netfangi gylfi@remax.is
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Opið hús:10. nóv. kl 13:00-13:30
Image
Opna eign
Fífusel 35
109 Reykjavík
102.2 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
675 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Jörfabakki 14
109 Reykjavík
111.5 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
414
627 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Orrahólar 7
111 Reykjavík
94.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
705 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:10. nóv. kl 14:30-15:00
Image
Opna eign
Sólheimar 25
104 Reykjavík
89.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
759 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin