Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Fallega og rúmgóða 3ja herbergja endaíbúð með góðum suðursvölum á vinsælum stað við Lautarsmára 41 í Kópavogi. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð á 3. hæð (efstu) í sex íbúða fjölbýli. Eignin skiptist í anddyri, gang, stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús, tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt geymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði við inngang fylgir eigninni.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í anddyri og gang með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa: Rúmgóð stofa og borðstofa eru saman í opnu rými með harðparket á gólfi og útgengi út á góðar suðursvalir.
Eldhús: Er hálf opið og hægt er að ganga inn í á tvo vegu, frá stofu og gangi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum og tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Harðparket á gólfi.
Þvottaherbergi: Innaf eldhúsi er sér þvottaherbergi með hillum á vegg og innrétting með skúffueiningu undir þvottavél og þurrkara. Flísalagt gólf.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, hvítar flísar á vegg og gólfi. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum fataskáp sem nær upp í loft og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Svefnherbergi með harðparket á gólfi.
Geymsla: Í sameign í kjallara er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Eigninni hefur verið vel viðhaldið:Framkvæmdir á húsi og íbúð á árunum 2016-2025:
Þak yfirfarið, skipt var um skrúfur og plötur skoðaðar (2016)
Skipt var um teppi á sameign ásamt því að sameign var máluð að innan (2020)
Gólfefni endurnýjað í íbúð, nýtt parkett og listar (2021)
Allt gler endurnýjað í suður og austurhluta hús ( 2021)
Allt húsið var málað ásamt gluggum (2023-2024)
Ný blöndunartæk og klósett á baðherbergi (2025)
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.