Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli í Laugardalnum í Reykjavík. Sér inngangur er inn í íbúð og er hún lítið niðurgrafin. Íbúðin er laus til afhendingar. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og var m.a. múrviðgert og málað 2022. Húsið er innst í botnlanga og því á rólegum og skjólgóðum stað. Garðurinn er gróinn og snyrtilegur. Göngufæri er í leik-, grunnskóla og verslanir. Einnig í Laugardalinn þar sem hægt er að sækja ýmsa íþróttaiðkun, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og sundlaug. Frábær staðsetning.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 46,4 m2. **HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ 3D AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR!*SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN FIMMTUD. 26. JÚNÍ Nánari lýsing:Forstofa er inn um sér hurð inn í íbúð. Gólfflísar.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu. Ísskápur frístanddand sem og eldavél. Eldvavél er nýleg og fylgir. Efri skápar ná upp í loft. Veggfest borð sem hægt er að sitja við á háum stólum. Ljósar gólfflísar.
Stofa er með nýlegum gluggum sem snúa út í garð til suðurs. Nýtt parket á gólfi stofu.
Baðherbergi er með salerni, baðkari og handlaug. Nýleg blöndunartæki á baðherbergi. Ljósar gólfflísar.
Herbergi er með fataskápum sem ná upp í loft. Gluggi er nýlegur og snýr út í gróinn garð til suðurs. Parket á gólfi herbergis.
Geymsla er sér undir útitröppum.
Þvottahús er í sameign á sömu hæð og íbúð.
Fyrirhugað fasteignamat eignar árið 2026: 43.450.000 kr.-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-