RE/MAX Ísland logo
Opið hús:20. sept. kl 15:00-16:00
Skráð 16. sept. 2026
Söluyfirlit

Hlíðarhjalli 72

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
252.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
613.222 kr./m2
Fasteignamat
148.200.000 kr.
Brunabótamat
128.550.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1987
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2062072
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Sjá nánar í lýsingu eignar
Þak
Sjá nánar í lýsingu eignar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir með útsýni
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti að hluta sjá lýsingu
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Hurð er á milli íbúðar og íbúðar á jarðhæð þar sem húsið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu. Seljendur munu láta loka því.
Kvöð / kvaðir
Inntök fyrir hitaveitu, vatn og rafmagn eru í bifreiðageymslu, sem er sérnotaeining eignahluta 01-02.01, en eiganda hins eignarhlutans skal veittur aðgangur að þeim eftir þörfum.
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **

RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum löggiltum fasteignasölum kynna:
Einstaklega rúmgóða og fjölskylduvæna eign á frábærum útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin er alls 252,6 fm á tveimur hæðum með tvöföldum góðum bílskúr, stórum og björtum stofum, fallegum suðurgarði.  Húsið hefur fengið mjög gott viðhald innan sem utan. Staðsetning er einstaklega góð þar sem það stendur innst í botnlanga við opið og gróið svæði og nýtur fallegs útsýnis og eru góðir skjólveggir í fallegum garðinum.
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð er á neðri hæðinni, með sér inngangi, á sér fastanúmeri er einnig til sölu og hafa báðar eignir verið í eigu sömu fjölskyldu.
* Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er kr. 151.550.000.- *

*  VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**  HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN! 

*** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI - ÁN HÚSGAGNA 

Helstu kostir eignarinnar
- Rúmgóð og fjölskylduvæn eign á tveimur hæðum.
- Staðsett innst í botnlanga við opið og gróið svæði með fallegu útsýni yfir Kópavog, til Bláfjalla og Suðurnesja.
- Stórar og sólríkar svalir til suðurs og skjólgóðar verandir og notalegt útisvæði.
- Bjartar stofur með stórum gluggum og arni.
- Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi.
- Möguleiki á fjórða svefnherberginu 
- Tvö rúmgóð baðherbergi, eitt á hvorri hæð
- Tvöfaldur 43,4 fm innangengur bílskúr með góðri vinnuaðstöðu, epoxy á gólfi og er snjóbræðsla á bílaplani, stéttum og í tröppum
- Gróinn, afgirtur og skjólgóður suðurgarður
- Húsið málað að utan árið 2025.
---------------------------------------------
Viðhald og endurbætur
2010 – Flísar í eldhúsi.
2012 – Gler í stofu á efri hæð endurnýjað með einangrunargleri.
Skipt hefur verið um gler í flestum opnanlegum fögum á suðurhlið.
Skipt um gler í gluggum hjónaherbergis og svefnherbergis til suðurs á efri hæð.
2016 – Baðherbergi og forstofa endurnýjuð, m.a. gólfhiti.
2017 – Þak pússað upp og málað.
2020 – Fiskibeinaparket á efri hæðinni pússað, litað og lakkað.
2021 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.
2023 – Skipt um öll nema ein blöndunartæki á baðherbergjum og eldhúsi. Þessi einu eru til og fylgja með.
2025 – Húsið málað að utan; steyptir veggir, gluggakarmar, hurðar og þakkantur. Austurgafl er eftir.
2025 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.
2025 – Tröppur á vesturhlið hússins lagfærðar, múraðar og yfirborðsmeðhöndlaðar til vatnsvarnar.
-------------------
Nánari lýsing
Húsið var byggt árið 1987 og er eignin skráð í heild sinni 252,6 fm samkvæmt Fasteignaskrá HMS sem skiptist í íbúðarhluta 209,4 fm og tvöfaldur bílskúr 43,4 fm. Á neðri hæð hússins er einnig í sölu 62,1 fm íbúð með sérinngangi. Í dag er hurð á milli eignanna þar sem báðar eignir eru í eigu sömu fjölskyldur en hægt að loka endanlega fyrir það og munu seljendur ganga frá því seljist eignirnar til óskyldra aðila. 
Efri hæð
Forstofa: Flísalögð með gólfhita. Forstofan var endurnýjuð árið 2016.
Stofa/borðstofa: Einstaklega bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum og fallegu útsýni. Útsýni er yfir Kópavog, til Bláfjalla í austri og Suðurnesja í suðri. Setustofa með arni liggur samhliða borðstofu og úr borðstofunni er gengið út á stórar og sólríkar svalir til suðurs.
Eldhús: Rúmgott með eikarinnréttingu og góðu skápa- og vinnuplássi. Tveir ofnar, spanhelluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar eru á tvo vegu og góður borðkrókur. Innrétting/skápur í hálfri hæð skilur eldhús og borðstofu að hluta en viðheldur um leið góðu flæði milli rýmanna.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru á hæðinni. Annað er rúmgott með góðum gluggum til suðurs og hitt er staðsett inn af forstofu.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2016. Flísalagt með gólfhita, sturtuklefa, innréttingu með handlaug og skápum, upphengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi.
Gegnheilt eikarparket með fiskibeinamunstri er á stofum, holi og stærra svefnherberginu. Fljótandi parket er á minna svefnherberginu og flísar á eldhúsi.
Bílskúr: Innangengt er um gang og eldvarnarhurð í tvöfaldan bílskúr. Þar eru góðir gluggar til austurs og suðurs, vinnubekkur með vaski, heitt og kalt vatn og góð vinnuaðstaða. Epoxy er á gólfi.
Neðri hæð:
Hjónasvíta: Rúmgóð og sérlega vel skipulögð. Þar er gangur með miklu skápaplássi, stórt hjónaherbergi með gluggum út í garð og fataherbergi með lokuðum skápum.
Sjónvarpsstofa/hol: Rúmgott og notalegt fjölskyldurými með gluggum til suðurs. Rýmið býður jafnframt upp á möguleika á fjórða svefnherberginu. Útgengt er á pall/verönd og þaðan í afgirtan, gróinn og skjólgóðan suðurgarð.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt með sturtuklefa, baðkari, innréttingu með tveimur handlaugum og góðum skápum. Gluggi er með opnanlegu fagi og útgengt á pall þar sem tilvalið er að koma fyrir heitum potti.
Þvottahús: Góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavélar í vinnuhæð, vinnubekk, vaski og góðu vinnuplássi.
Geymsla: Rúmgóð með miklu hilluplássi og tengi fyrir frystiskáp.
Garður og útisvæði
Garðurinn er gróinn, fallegur og afgirtur bæði að austan og vestan og því afar skjólsæll. Meðfram húsinu til suðurs er hellulögð/timburklædd verönd og góð tenging er milli innri og ytri rýma.
Í garðinum er einnig rúmgóð útigeymsla sem tilheyrir íbúðinni og rúmar vel garðhúsgögn, hjól og annan búnað.
Snjóbræðsla er á bílaplani fyrir framan bílskúrshurðir, undir hellulögðum stéttum fyrir framan húsið og í tröppum vestan megin við húsið niður í garð og að íbúðinni.
Staðsetning
Eignin stendur á góðum og rólegum stað innst í botnlanga við opið svæði. Kópavogsdalurinn og græn útivistarsvæði eru í næsta nágrenni ásamt fallegum gönguleiðum. Ekkert hús stendur fyrir innan eignina við götuna.
Einstaklega rúmgóð og fjölskylduvæn eign með miklu útsýni, góðum útisvæðum og tvöföldum bílskúr. Eign sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir stóra fjölskyldu, auk möguleika á leigutekjum ef 2ja herbergja í búðin er tekin í sömu kaupum.

Hjallarnir er eftirsótt og gróið hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir auk góðra samgangna. Svæðið sameinar nútímalegt borgarumhverfi og fallega náttúru með sjóinn og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Eignin býður upp á einstaklega aðlaðandi kosti fyrir þá sem gera kröfur bæði um gæði og þægindi. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Þórdís Björk Davíðs, lgf., í síma 862-1914  eða á thordis@remax.is - Salvör Þóra Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is

---------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk


 
Byggt 1987
43.4 m2
Fasteignanúmer
2062072
Byggingarefni
Steypa
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hjallabrekka 20
200 Kópavogur
268 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
725
627 þ.kr./m2
168.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Grænatún 16
200 Kópavogur
239.8 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
837
623 þ.kr./m2
149.500.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Fagrihjalli 46
200 Kópavogur
222.1 m2
Parhús á pöllum
624
652 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hrauntunga 59
200 Kópavogur
214.3 m2
Raðhús á tveimur hæðum
625
758 þ.kr./m2
162.500.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin