RE/MAX Ísland logo
Opið hús:06. júlí kl 16:30-17:30
Skráð 3. júlí 2026
Söluyfirlit

Þrastarás 46

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
80.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
807.214 kr./m2
Fasteignamat
60.750.000 kr.
Brunabótamat
43.300.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2001
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2250912
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Skipt um allar hitaveitulagnir á ytra byrði húss og hitastillum á ofnum í íbúðum. Neysluvatnslagnir upprunalegar.
Raflagnir
Upprunalegt (2001).
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2001).
Gluggar / Gler
Gluggar og hurðar pússað og málað sumar 2026. Skipt um lista þar sem þarf. Að öðru leiti upprunalegt.
Þak
Upprunalegt (2001).
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Viðarverönd til vesturs.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2-3ja herb. íbúð með sér inngangi að Þrastarás 46b í Hafnarfirði. Íbúðinni fylgir sér afgirt viðarverönd til vesturs. Rafmagnshleðslustöðvar eru komnar út á bílaplan til afnota fyrir íbúa og verið er að endurnýja hitaveitulagnir í húsinu og mála alla glugga og hurðar. Þær framkvæmdir eru kostaðar af seljanda. Frábær staðsetning við leik- og grunnskóla. Einnig eru fínir stígar um hverfið og bak við hús er óspillt náttúra sem leiðir mann um slóða og stíga upp á Ásfjall og niður að Ástjörn. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 80,4 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax

Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af hellulagðri stétt. Sér inngangur er inn í íbúð. Í forstofu eru gráar gólfflísar, ofn og gluggi sem hleypir góðri birtu inn í gegnum íbúðina. 
Herbergi I er mjög rúmgott með viðarfataskáp sem fyllir einn vegg. Gluggi vísar út í garð til austurs. Þar sést ekki yfir í nein hús, eingöngu upp í móa. Parket á gólfi herbergis.
Herbergi II er það sem áður var geymsla og er þannig á teikningu. Gluggi er með opnanlegu fagi og vísar út á pall. Herbergið nýtist sem barnaherbergi í dag og getur kojan fylgt. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Virkilega vítt til veggja og inn af baðherbergi er þvottahús. Hvít innrétting við handlaug og veggfestur spegill. Salerni og baðkar með sturtu. 
Þvottahús er inn af baðherbergi. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Veggfestir hvítir skápar og borðplata í vínkil. Blöndunartæki á vegg og möguleiki á að koma fyrir skolvaski. Ljósar gólfflísar.
Eldhús er í opnu rými með stofu. Milli efri og neðri skápa eru hvítar veggflísar. Innrétting er filmuð hvít. Ofn og helluborð (nýtt  frá 2023) í grárri borðplötu. Vifta fyrir ofan. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp. Parket á gólfi. 
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Inn af stofu er herbergi/geymsla. Gengið er úr stofurými út á afgirta viðarverönd til vesturs. Parket á gólfi stofu.
Viðarverönd út frá stofurými er skjólsæll sælureitur. Þegar sólin lætur sjá sig er hún að koma inn á pallinn á þessum árstíma um kl.13:30.
Geymsla er með sér hurð og gengið er inn í hana frá undirgangi. Einnig er hurð inn í stofurými íbúðar. Geymslan er minni en teikningar segja til um þar sem útbúið var svefnherbergi í hluta hennar. 
Lóðin er gróin með grasfleti aftan við hús. Malbikaður göngustígur og móinn tekur svo við. Framan við hús eru stéttar og bílaplan. Í hluta bílastæða eru rafmagnshleðslustöðvar.

Gólfefni: Parket á íbúðinni sem og gólfflísar í forstofu voru endurnýjuð af núverandi eigendum árið 2019.

Endurbætur húsfélags:
Sumar 2026 er verið að klára að endurnýja allar hitaveitulagnir og hitastilla í ofnum. Verktaki; GSÓ pípulagnir.
Sumar 2026 skipt um gluggalista þar sem þarf og allir gluggar og hurðir pússaðir og málaðir. Verktaki; Litakompaníið.

Áætlað fasteignamat árið 2027: 62.700.000 kr.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Eskivellir 17
221 Hafnarfjörður
79.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
775 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Bjarkavellir 1B
221 Hafnarfjörður
72 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
874 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Álfholt 30
220 Hafnarfjörður
74.6 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
851 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Háholt 5
220 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
622 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin