RE/MAX kynnir til sölu: Huggulega og vel skipulagða 4ja herbergja sérhæð að Efstasundi 92,104 Reykjavík. Íbúðin er á miðhæð, með sérinngangi og einkabílastæði við hlið hússins. Bílskúrréttur fylgir eigninni.
Eignin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og alrými sem er stofa, eldhús og borðstofa.
Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð undanfarin ár, þar á meðal endurhannað nýtt eldhús 2024, nýtt gólfefni (og gólfhiti), baðherbergið tekið í gegn, nýjir fataskápar, og sérsniðnar gardínur.
Búið er að taka öll dren í kringum húsið og þakið lagfært. Raflagnir endurnýjaðar að mestu ásamt því að rafmagnstaflan var endurnýjuð, neysluvatnslagnir og skólplagnir nýlegar settar út í brunn.
Forstofa, með parketi á gólfi og fatahengi.
Björt og opin stofa/borðstofa með parket á gólfi og stórum gluggum.
Eldhús, með parketi á gólfi, dökk IKEA innrétting með góðu vinnusvæði og setusvæði öðru megin, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum skápum.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi
Baðherbergi með sturtu, innréttingu, upphengt WC og er baðherbergið flísalagt að hluta og með glugga.
Svefnherbergisgangur er rúmgóður með parketi á gólfi
Í sameign er 3,1 m2 sérgeymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús. Sameiginleg útigeymsla fyrir t.d dekk og reiðhjól.
Ath sú breyting hefur orðið á íbúðinni skv teikningu er að eldhús er orðið að svefnherbergi og er eldhúsið núna staðsett í alrými ásamt stofu og borðstofu.
Mjög góð staðsetning í þessu sívinsæla hverfi þar sem stutt er í þjónustu, skóla verslanir og út á stoðbraut.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Jarl löggitlur fasteignasali / stefan@remax.is / 892 9966
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.