RE/MAX Ísland logo
Opið hús:20. ágúst kl 16:30-17:30
Skráð 17. ágúst 2026
Söluyfirlit

Furugrund 42

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
62.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
932.367 kr./m2
Fasteignamat
51.950.000 kr.
Brunabótamat
33.600.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1976
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2060757
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Skipt hefur verið um þrýstijafnara og mæla. Ekki vitað um annað.
Raflagnir
Rofar og tenglar í íbúð verið endurnýjaðir. Ekki vitað um annað.
Frárennslislagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Gluggar og útihurðir endurnýjað 2025.
Þak
Skv. ástandsskýrslu 2025 metið í lagi. Annað ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
SV-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir fallega 2ja herbergja íbúð á 3. hæð að Furugrund 42 í Kópavogi. Sameignin er einstaklega snyrtileg og nýir gluggar og hurðir eru í öllu húsinu, brunavarnarhurðir í stigagangi og stigagangur og sameign hefur einnig fengið endurbætur. Í íbúðinni er búið að endurnýja gólfefni og hurðar og út frá stofu eru einstaklega stórar suðvestur svalir sem ná yfir alla íbúðina. Húsið er staðsett neðarlega í Fossvoginum við íþróttasvæði HK og leik- og grunnskóla. Í Fossvoginum eru hjóla- og göngustígar, leiksvæði, strandblakvellir og frispígolf. Frábært svæði til útivistar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, stofurými, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 62,1 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af einstaklega snyrtilegri sameign. Nýleg eldvarnarhurð er inn í íbúð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf og flæðir parketið um öll rými íbúðar nema baðherbergi. 
Stofa/borðstofa er björt, enda eru gluggar eftir stofunni endilangri. Opið er milli eldhúss og stofu og þar er útgengi út á svalir.
Svalir eru mjög stórar og snúa til suðvesturs. Þar sem íbúðin er á efstu hæð eru engar svalir fyrir ofan. Svalargólf er með stimplaðri steypu og því auðvelt að halda þeim fínum.
Eldhús er með innréttingu á tveimur veggjum. Stæði er fyrir uppþvottavél. Nýlegar ljósar borðplötur og nýlegur bakaraofn og vaskur. Yfir helluborði er veggfestur háfur.
Svefnherbergi er rúmgott. Fataskápar á einum vegg.
Baðherbergi er með ljósdrapplituðum gólfflísum og hvítum upp veggi. Salerni og baðkar með sturtu. Nýlegur veggfestur speglaskápur m/ljósi og hvít skúffueining undir handlaug með svartri borðplötu..
Geymsla íbúðar er sér, staðsett í kjallara. Opnanlegt fag er á geymslu og rafmagnstengill.
Þvottahús er í sameign í kjallara. Hver er með sína vél. Einnig er stórt þurrkherbergi í næsta rými..
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara. Snyrtileg með epoxý á gólfi. Gott aðgengi er fyrir hjól og vagna út á ramp/tröppur framan við hús.
Bílastæði eru í sameign. Sameiginleg bílastæðalóð er fyrir Furugrund 40-54.

Endurbætur: Skv. upplýsingum frá húsfélagi var skipt um alla glugga, svalahurðir og útidyrahurðir í húsinu árið 2025. Árið 2026 var sameign máluð og fyrir nokkrum árum lögð ný teppi og Epoxý sett á gólf í kjallara. Árið 2023 voru endurnýjaðar allar brunavarnahurðir inn í allar íbúðir. Þrýstijafnari og mælar á grind var einnig nýlega skipt um. Árið 2021 var parket í íbúð endurnýjað og opnað betur á milli eldhúss og stofu. Allir sólbekkir endurnýjaðir samhliða, hurðir í íbúð og ragmagnstenglar. Í desember 2025 voru borðplötur í eldhúsi endurnýjaðar, búið til pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu og settur nýr vaskur og bakaraofn. Einnig er komið nýtt veggfest hátt morgunverðarborð við glugga í eldhúsi.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18A
200 Kópavogur
48 m2
Fjölbýlishús með lyftu
11
1,248 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Digranesvegur 14
200 Kópavogur
60.1 m2
Fjórbýli
211
997 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin