Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir fallega 2ja herbergja íbúð á 3. hæð að Furugrund 42 í Kópavogi. Sameignin er einstaklega snyrtileg og nýir gluggar og hurðir eru í öllu húsinu, brunavarnarhurðir í stigagangi og stigagangur og sameign hefur einnig fengið endurbætur. Í íbúðinni er búið að endurnýja gólfefni og hurðar og út frá stofu eru einstaklega stórar suðvestur svalir sem ná yfir alla íbúðina. Húsið er staðsett neðarlega í Fossvoginum við íþróttasvæði HK og leik- og grunnskóla. Í Fossvoginum eru hjóla- og göngustígar, leiksvæði, strandblakvellir og frispígolf. Frábært svæði til útivistar.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofurými, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 62,1 m2.*
VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!Smelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing:
Forstofa er inn af einstaklega snyrtilegri sameign. Nýleg eldvarnarhurð er inn í íbúð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf og flæðir parketið um öll rými íbúðar nema baðherbergi.
Stofa/borðstofa er björt, enda eru gluggar eftir stofunni endilangri. Opið er milli eldhúss og stofu og þar er útgengi út á svalir.
Svalir eru mjög stórar og snúa til suðvesturs. Þar sem íbúðin er á efstu hæð eru engar svalir fyrir ofan. Svalargólf er með stimplaðri steypu og því auðvelt að halda þeim fínum.
Eldhús er með innréttingu á tveimur veggjum. Stæði er fyrir uppþvottavél. Nýlegar ljósar borðplötur og nýlegur bakaraofn og vaskur. Yfir helluborði er veggfestur háfur.
Svefnherbergi er rúmgott. Fataskápar á einum vegg.
Baðherbergi er með ljósdrapplituðum gólfflísum og hvítum upp veggi. Salerni og baðkar með sturtu. Nýlegur veggfestur speglaskápur m/ljósi og hvít skúffueining undir handlaug með svartri borðplötu..
Geymsla íbúðar er sér, staðsett í kjallara. Opnanlegt fag er á geymslu og rafmagnstengill.
Þvottahús er í sameign í kjallara. Hver er með sína vél. Einnig er stórt
þurrkherbergi í næsta rými..
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara. Snyrtileg með epoxý á gólfi. Gott aðgengi er fyrir hjól og vagna út á ramp/tröppur framan við hús.
Bílastæði eru í sameign. Sameiginleg bílastæðalóð er fyrir Furugrund 40-54.
Endurbætur: Skv. upplýsingum frá húsfélagi var skipt um alla glugga, svalahurðir og útidyrahurðir í húsinu árið 2025. Árið 2026 var sameign máluð og fyrir nokkrum árum lögð ný teppi og Epoxý sett á gólf í kjallara. Árið 2023 voru endurnýjaðar allar brunavarnahurðir inn í allar íbúðir. Þrýstijafnari og mælar á grind var einnig nýlega skipt um. Árið 2021 var parket í íbúð endurnýjað og opnað betur á milli eldhúss og stofu. Allir sólbekkir endurnýjaðir samhliða, hurðir í íbúð og ragmagnstenglar. Í desember 2025 voru borðplötur í eldhúsi endurnýjaðar, búið til pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu og settur nýr vaskur og bakaraofn. Einnig er komið nýtt veggfest hátt morgunverðarborð við glugga í eldhúsi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-