RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: Einstaklega falleg 4ra-5 herbergja íbúð á fyrstu hæð, á besta stað í firðinum fagra. Húsinu hefur verið vel við haldið, var málað og múrviðgert að utan 2025 auk þess var þak yfirfarið og málað fyrir nokkrum árum.
****SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D****Nánari lýsing:
Sér inngangur í íbúðina á jarðhæð inn í flísalagða forstofu með opnum fataskápum.
Geymsla/búr inn af forstofu.
Stofa og borðstofa er einstaklega rúmgóð með parket á gólfi, og búið að gera op (lúgu) inn í eldhúsið.
Eldhús með fallegri ljósri innréttingu, vínil flísum á gólfi og lúgu inn í borðstofuna.
Þvottahús með glugga er inn af eldhúsi með innréttingu.
Svefnherbergisgangur með parket á gólfi.
Útgengi út á afgirta verönd og sameiginlegan garð. Tvö góð barnarherbergi með vínilflísum á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott með vínilflísum á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalegt með glugga, sturtubaðkari og góðu skápaplássi.
Í kjallara er rúmgott herbergi sem hefur verið notað sem
fjórða svefnherbergið, en einnig hefur það verði einangrað og nýtt sem
hljóðstúdíó.Í sameign er einnig stór sér geymsla með hillum og sameiginleg geymsla með öðrum íbúum hússins. Stutt er í alla þjónustu, Öldutúnsskóli (grunn og gagnfræðaskóli) og Flensborgarskóli er í göngufæri, ásamt því að stutt er í alla helstu þjónustu í miðbæ Hafnarfjarðar sem iðar af menningu og lífi. Veitingastaðir, verslanir og afþreying. Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.