Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herb. sérhæð á 1. hæð í þríbýli að Bollagötu 14 í Reykjavík. Húsið er í Norðurmýrinni, við Klambratún. Húsið er steinsteypt, hefur verið endursteinað og þakið hefur einnig verið endurnýjað. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og samliggjandi eldhúsi og stofu. Baðherbergi var stækkað og rúmar því einnig þvottavél. Einnig er stórt þvottahús í sameign. Bílastæði inni á lóð fylgir. Þar sem húsið er í miðbænum, eru veitingastaðir, þjónusta og verslanir í nánasta nágrenni. Einnig er leiksvæði í götunni og á Klambratúni og göngufæri er í leik- og grunnskóla sem og Sundhöll Reykjavíkur.
Kjallaraíbúðin er í eigu sama aðila og er einnig möguleiki að kaupa hana.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslur. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 116,4 m2.**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN ÞRIÐJUDAGINN 17. FEBRÚAR. Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn af sameiginlgum inngangi með 2. hæð. Þar er komið inn á flísalagða forstofu þar sem einnig er gengið niður í kjallara. Innan íbúðar er stórt parketlagt hol með innfelldum hvítum fataskáp.
Hol er miðja íbúðar og er þaðan gengið inn í allar vistarverur íbúðar. Innfelldur hvítur fataskápur fyrir yfirhafnir. Parket á gólfi.
Eldhús er nú staðsett í svokallaðri dagstofu við hlið stofu. Fallegur horngluggi til austurs og suðurs. Hvít eldhúsinnrétting með svartri borðplötu. Efri skápar ná upp í loft og milli skápa eru gráar veggplötur. Helluborð og háfur yfir, ofn og örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél fylgir. Öll tæki eru Siemens.
Stofa björt með gluggum til suðurs og vesturs. Gengið er út á bogadregnar svalir sem vísa út í garð. Parket á gólfi stofu.
Herbergi I er stærst herbergjanna og er þaðan hægt að ganga út á suðaustur svalir. Viðarskápar ná upp í loft og að auki er hvítur skápur.
Herbergi II er á suðvesturhorni húss með gluggum á tvo vegu. Þetta herbergi er minnst herbergjanna. Tvöfaldur fataskápur nær upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi III er það rými sem áður var eldhús. Gluggi til vesturs. Dökkar gólfflísar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Hvítar flísar á veggjum og gráar gólfflísar. Hvít innrétting undir handlaug og stæði fyrir þvottavél undir grárri borðplötu. Speglaskápur með ljósi, veggfestur ílangur hvítur skápur, upphengt salerni, króm handklæðaofn og sturtuklefi.
Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara.
Geymsla er sér í sameign í kjallara. Einnig er
áhaldageymsla, dekkjageymsla og kyndiklefi/hjólageymsla í sameign.
Bílastæði er innan lóðar skv. venju fyrir þessa íbúð.
Garður er snyrtilegur, stór og gróinn.
Pottofnar eru í íbúðinni. Virkilega sjarmerandi og flottir eftir að þeir voru sandblásnir og sprautaðir.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-