RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og töluvert endurnýjuð þriggja herbergja 97,5 fm. íbúð á jarðhæð með sérinngangi og skjólgóðri verönd til suðurs á eftirsóttum stað við Frostafold 149, Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu og stofu, tvö mjög rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Með eigninni fylgir sérgeymsla staðsett í sameign, ekki inní birtum fm. og sérmerkt bílastæði á lóð.
* Sérinngangur og skjólgóð verönd til suðurs.
* Endurnýjað m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni.
* Sérmerkt bílastæði.
* Frábær staðsetning, stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Falleg og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, sundlaug, íþróttastarf ofl.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.isNánari lýsing:
Íbúðin er staðsett á jarðhæð með sérinngangi. Góð aðkoma er að húsinu.Forstofa er flísalögð með nýlegum fataskápum.
Hol tengir saman helstu vistarverur íbúðar.
Eldhús hefur verið endurnýjað, með fallegum hvítum innréttingum, efri skápum og grárri borðplötu. Spanhelluborð, gufugleypir og bökunarofn í vinnuhæð. Harðparket á gólfum.
Borðstofa og stofa er í björtu opnu alrými, harðparket á gólfum. Fallegur
skólskáli er í stofuhorni, getur nýst sem vinnuaðstaða eða leikhorn.
Úr stofu er útgengt út á stóra afgirta timburverönd til suðvesturs. Svefnherbergin eru tvö, mjög stór og rúmgóð með harðparketi á gólfum. Í hjónaherbergi eru góðir fataskápar.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, falleg hvít innrétting með góðum speglaskáp og efri skápum, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu. Flísalagt gólf og veggir að mestu.
Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla íbúðar er staðsett í sameign á jarðhæð (ekki í birtum fermetrum íbúðar). Einnig er sameiginleg
vagna og hjólageymsla staðsett í sameign.
Bílastæði íbúðar er
sérmerkt á lóð við hús (sjá eignaskiptayfirlýsingu).
Endurbætur og viðhald síðustu ára2020-2024 var húsið múrviðgert og málað. Klæðning sett á suður-gafl. Skipt hefur verið um klæðningu á þakkanti og þak málað. Skipt hefur verið um glugga/gler að hluta en nokkur gler eru nú komin á tíma.
2023 var baðherbergi endurnýjað. Ný vaskinnrétting, baðkar og glerþil.
2021 var eldhús endurnýjað. Sett ný eldhúsinnréttin og tæki. Nýr bökunarofn og spanhelluborð.
2021 voru sett ný gólfefni, harðparket á alrými og svefnherbergi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.