Ég hef starfað sem fasteignasali hjá RE/MAX frá árinu 2019. Fyrir þann tíma starfaði ég um árabil á fjármálamarkaði, meðal annars við lánveitingar og lánshæfismöt, fyrirtækjaráðgjöf, eignastýringu, ásamt verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf.
Auk löggildingar sem fasteignasali hef ég próf í verðbréfaviðskiptum og lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Reynsla mín úr fjármálaheiminum og menntun á sviði laga og fjármála hefur reynst mér góður grunnur í starfi fasteignasala, þar sem fagleg ráðgjöf, traust og góð yfirsýn skiptir miklu máli.
Ég legg mikla áherslu á góða þjónustu og vönduð vinnubrögð í gegnum allt söluferlið. Hvort sem þú ert að velta fyrir þér sölu, kaupum eða vilt einfaldlega fá faglegt mat á næstu skrefum, er þér eða þínum alltaf velkomið að hafa samband.