RE/MAX Ísland logo
Skráð 28. okt. 2024
Deila eign
Deila

Langimelur 18

SumarhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
4 Herb.
Verð
11.000.000 kr.
Fasteignamat
1.610.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2519236
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
1 - Samþykkt
Remax og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynnir til sölu einstaklega fallega lóð í Hvammsvík:  Lóð sem staðsett er í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar.  Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 30-45 mín. fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni og nýju sjóböðunum.  Mikið fuglalíf er á svæðinu og hefur jörðin mikla sögu allt frá landnámsöld.   Lóð nr. 18 er einstaklega vel staðsett, með útsýni út að sjó og litlum læk sem rennur í gegnum hana.  

Lóðin er um 0,54 ha. að stærð og búið er að samþykkja teikningar fyrir 120,0 fm. sumarhús sem geta fylgt kaupum.


Kjósarveitur leggja hitaveitu ásamt ljósleiðara og RARIK rafmagn að lóðarmörkum. Landeigandi hefur séð til þess að veituskurður meðfram vegi er til staðar þar til gengið hefur verið frá öllum lögnum í skurðinn en heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara nýta skurðinn.  Landeigandi mun setja upp hlið og girða af svæðið meðfram þjóðveginum í gegnum land Hvammsvíkur. Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá hliði.

Kaupandi er upplýstur um að hann semur sjálfur um tengigjöld og notkun við RARIK vegna rafmagns og Kjósarveitur vegna heits vatns og ljósleiðara. Landeigandi leggur kalt vatn að lóðarmörkum án innheimtu tengigjalds en kaupandi greiðir landeiganda fyrir kalt vatn kr. 30.000 á ári frá 1. janúar 2023. Vatnsgjaldið hækkar í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2024.
Kaupandi er upplýstur um að hann beri ábyrgð á lagningu allra lagna inni á sinni lóð.  Kaupandi er jafnframt upplýstur um að samkvæmt deiliskipulagi skulu frístundarhúsin að jafnaði vera á einni hæð en með nýtanlegu risi og er hámarks byggingarmagn á hverri lóð 3% eða um 162 fm.  Áhersla er á vönduð hús sem mynda heildstæða mynd og falla vel að umhverfinu. Lóðareigandi ber sjálfur ábyrgð á að leggja innkeyrslu / bílastæði frá lóðamörkum  að sínu húsi.

Fráveita er á ábyrgð lóðareiganda í samræmi við leiðbeiningar um gerð og frágang rotþróa í sveitarfélaginu.  Framræsla er jafnframt á ábyrgð lóðareiganda.                               
Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og verður þinglýst kvöð þess efnis.
Kaupandi skuldbindur sig til að klára byggingu húsa eigi síðar en tveimur árum eftir undirritun kaupsamnings og afhendingu eignar.
Kaupandi er upplýstur um að hann ásamt öðrum eigendum frístundahúsa á svæðinu eða félag á þeirra vegum sjái um viðhald og rekstur hliðs og vegar.
Kaupandi er upplýstur um að hann greiðir öll opinber gjöld og tryggingar vegna eignarinnar.  Búið er að stofna sumarhúsafélag landeigenda í Hvammsvík, árgjald 25.000. Innifalið verður minniháttar viðhald á vegum, snjóruðningur og viðhald á aðgangsstýringu (bílastæðaslár).

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 og netfang gudrunlilja@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.  4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Langimelur 27
276 Mosfellsbær
Sumarhúsalóð
10.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Langimelur 29
276 Mosfellsbær
Sumarhúsalóð
10.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
remax@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin