RE/MAX Ísland logo
Skráð 18. júní 2025
Söluyfirlit

Brekkubyggð 14

Jörð/LóðVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
Verð
Tilboð
Fasteignamat
1.220.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2334714
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega vel staðsett sumarhúsalóð með fallegu útsýni í Brekkubyggð 14, 320 Borgarbyggð. 

Lóðin er leigulóð um 4631,0 m² að stærð undir frístundahús með stórbrotnu útsýni í landi Bjarnastaða í Hvítársíðu, aðeins 5-10 mín. akstur frá Húsafelli.   Lóðinni fylgir tilbúnar teikningar en einnig er hægt að kaupa húsið fullbúið eftir samkomulagi. Aðaluppdrættir teikninga eru samþykktir ef engra breytinga er óskað. Heimilt er að óska eftir breytingu á deiliskipulagi, byggingarreitur stækkar um 10m. í vestur og 10m. í austur.

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Svæðið er skipulagt sem frístundabyggð. Lóðin er leigð til 25 ára í senn með forleigurétti áfram að þeim tíma loknum. Búið er að greiða tengikostnað vegna hitaveitu.  Vatn og rafmagn við lóðarmörk, leigusalar sjá um að vegir séu akfærir að lóðarmörkum, bílastæði skulu vera innan lóðarmarka og sér leigutaki um að útfæra þau. Landeigandi leggur vegi og vatnsveitu að lóðamörkum. Vatnsból er nærri Hrauná.  Hitaveita er á svæðinu og er sérstakt félag um rekstur hennar. Gámastöð fyrir sorp er á svæðinu.

Lóðaleiga á ári er kr. 138.930,- með uppreiknaðri byggingavísitölu frá maí 2021, endurskoðað á 5 ára fresti.  Samkvæmt deiliskipulagi eiga litir húsa að falla að umhverfi, þök í dökkum jarðalitum og timbur tónað í viðarlitum.


Helstu ákvæði til byggingar skv. skipulagi
Hámarksstærð húsa miðast við 265 fm í heildarbyggingarmagn.  Hæsti punktur þaks verði ekki hærri en 5,5 m yfir aðalgólfi.  Þakhalli 15-25 gráður.  Sefna mænisása skal samræmd.  Dökkir jarðlitir æskilegir á öllum mannvirkjum.  Mannvirki séu ekki nær lóðarmörkum en 10 metra.


UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í LANDI BJARNASTAÐA MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Stampar 29
276 Mosfellsbær
130.6 m2
Sumarhús
523
727 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Laugavegur 157
105 Reykjavík
610.2 m2
Jörð/Lóð
188 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bringur 13
806 Selfoss
69.7 m2
Sumarhús
413
529 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Gaddstaðir 36
851 Hella
7,416.9 m2
Byggingarlóð
1 þ.kr./m2
6.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin