RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg frístundahúsalóð í Hvammsvík, Kjósarhreppi. Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 45 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Lóð nr. 22 á Langamel er mjög vel staðsett eignarlóð um 5700,0 fm. að stærð. Heimilt byggingarmagn allt að 171 fm.
HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 og gudrunlilja@remax.is.Jörðin er staðsett í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni. Mikið fuglalíf er á svæðinu og hefur jörðin mikla sögu allt frá landnámsöld.
Kjósarveitur leggja hitaveitu ásamt ljósleiðara og RARIK rafmagn að lóðarmörkum. Landeigandi hefur séð til þess að veituskurður meðfram vegi er til staðar þar til gengið hefur verið frá öllum lögnum í skurðinn en heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara nýta skurðinn. Landeigandi mun setja upp hlið og girða af svæðið meðfram þjóðveginum í gegnum land Hvammsvíkur. Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá hliði.
Kaupandi er upplýstur um að hann semur sjálfur um tengigjöld og notkun við RARIK vegna rafmagns og Kjósarveitur vegna heits vatns og ljósleiðara. Landeigandi leggur kalt vatn að lóðarmörkum án innheimtu tengigjalds en kaupandi greiðir landeiganda fyrir kalt vatn kr. 30.000 á ári frá 1. janúar 2023. Vatnsgjaldið hækkar í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2024.
Kaupandi er upplýstur um að hann beri ábyrgð á lagningu allra lagna inni á sinni lóð. Kaupandi er jafnframt upplýstur um að samkvæmt deiliskipulagi skulu frístundarhúsin að jafnaði vera á einni hæð en með nýtanlegu risi og er hámarks byggingarmagn á hverri lóð 3% eða um 171 fm. á Langamel nr. 22. Áhersla er á vönduð hús sem mynda heildstæða mynd og falla vel að umhverfinu. Lóðareigandi ber sjálfur ábyrgð á að leggja innkeyrslu / bílastæði frá lóðamörkum að sínu húsi.
Fráveita er á ábyrgð lóðareiganda í samræmi við leiðbeiningar um gerð og frágang rotþróa í sveitarfélaginu. Framræsla er jafnframt á ábyrgð lóðareiganda.
Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og er þinglýst kvöð þess efnis.
Kaupandi er upplýstur um að hann ásamt öðrum eigendum frístundahúsa á svæðinu eða félag á þeirra vegum sjái um viðhald og rekstur hliðs og vegar.
Kaupandi er upplýstur um að hann greiðir öll opinber gjöld og tryggingar vegna eignarinnar. Búið er að stofna sumarhúsafélag landeigenda í Hvammsvík, árgjald kr. 25.000,-. Innifalið verður minniháttar viðhald á vegum, snjóruðningur og viðhald á aðgangsstýringu (bílastæðaslár).
UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL FRÍSTUNDABYGGÐAR Í LANDI HVAMMSVÍKUR MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Á heimasíðu HVAMMSVIK.COM má finna ýmsar upplýsingar um svæðið
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.