RE/MAX Ísland logo
Skráð 20. okt. 2024
Deila eign
Deila

Langimelur 26

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
Verð
11.900.000 kr.
Fasteignamat
1.550.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2519246
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
0 - Úthlutað
Remax og Guðrún Lilja lögg.fasteignasali kynnir í einkasölu einstaklega fallega frístundahúsalóð í Hvammsvík:  Jörð er staðsett í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar og svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 45 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni.  Mikið fuglalíf er á svæðinu og hefur jörðin mikla sögu allt frá landnámsöld.  

Lóð nr. 26 er eignalóð og um 0,51 ha. að stærð og heimilt byggingarmagn er um 153 fm.  Teikning af húsi fylgir lóðinni sem nálgast má hjá fasteignasala ásamt raflagnateikningum. Byggingarleyfi er í ferli en búið er að samþykkja teikningar.  Teikningar af húsinu voru unnar af Arkiteo og rafmagnsteikningar af Elhönnun.


Landeigandi sér til þess að leggja veg að sumarhúsalóðum og að vegurinn verði tilbúinn fyrir flutninga. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði með 80 cm þykku malarlagi í vegstæði og breidd í toppinn verði 4,5 m.   Landeigandi verður í samskiptum við Kjósarveitur og RARIK en Kjósarveitur leggja hitaveitu ásamt ljósleiðara og RARIK rafmagn að lóðarmörkum.  Landeigandi sér til þess að veituskurður meðfram vegi verði til staðar þar til gengið hefur verið frá öllum lögnum í skurðinn en heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara nýta skurðinn.  Landeigandi mun setja upp hlið og girða af svæðið meðfram þjóðveginum í gegnum land Hvammsvíkur. Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá hliði.

Kaupandi þarf sjálfur að semja tengigjöld og notkun við RARIK vegna rafmagns og Kjósarveitur vegna heits vatns og ljósleiðara. Landeigandi leggur kalt vatn að lóðarmörkum án innheimtu tengigjalds en kaupandi greiðir landeiganda fyrir kalt vatn kr. 30.000 á ári frá 1. janúar 2023. Vatnsgjaldið hækkar í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2024.
Kaupandi ber ábyrgð á lagningu allra lagna inni á sinni lóð.  Samkvæmt deiliskipulagi skulu frístundarhúsin að jafnaði vera á einni hæð en með nýtanlegu risi og er hámarks byggingarmagn á hverri lóð 3% eða um 153 fm. á Langamel 26.  Áhersla er á vönduð hús sem mynda heildstæða mynd og falla vel að umhverfinu.  Lóðareigandi ber sjálfur ábyrgð á að leggja innkeyrslu / bílastæði frá lóðamörkum  að sínu húsi.

Fráveita er á ábyrgð lóðareiganda í samræmi við leiðbeiningar um gerð og frágang rotþróa í sveitarfélaginu.  Framræsla er jafnframt á ábyrgð lóðareiganda. Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og er þinglýst kvöð þess efnis.  Kaupandi skuldbindur sig til að klára byggingu húsa eigi síðar en tveimur árum eftir undirritun kaupsamnings og afhendingu eignar.  Kaupandi er upplýstur um að hann ásamt öðrum eigendum frístundahúsa á svæðinu eða félag á þeirra vegum sjái um viðhald og rekstur hliðs og vegar.  Kaupandi greiðir öll opinber gjöld og tryggingar vegna eignarinnar. Búið er að stofna sumarhúsafélag landeigenda í Hvammsvík, árgjald 25.000. Innifalið verður minniháttar viðhald á vegum, snjóruðningur og viðhald á aðgangsstýringu (bílastæðaslár).

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 og gudrunlilja@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.  4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
remax@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin