RE/MAX kynnir: Björt, vel skipulögð og endurnýuð að hluta 3ja til 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 3ja herbergja en hefur verið breytt í 4ra herbergja íbúð. Hún er 85,3 fm samkvæmt Þjóðskrá, með sérinngangi og aðgangi að stórum sameiginlegum garði. Húsið stendur á eignarlóð.
Frábær staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og helstu þjónustu.Allar upplýsingar veitir Dilyara lgf, s: 8641881 (eftir kl. 16:00), netfang: dilja@remax.is.Viltu skoða 360° myndir af eigninni? Smelltu hér.Viltu fá söluyfirlit sent strax? Smelltu hér.Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi.
Hol: Með tvöföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Björt með gluggum á tvo vegu, fallegu útsýni yfir garðinn og parketi á gólfi. Tvöföld hurð með frönsku gleri skilur hol og stofu að.
Eldhús: Opið við stofu/borðstofu, með fallegri ljósgrárri innréttingu og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Með fataaðstöðu og parketi á gólfi og aðgengi að þvottaherbergi með salerni og sturtu.
Baðherbergi: Með baðkari, upphengdu salerni, glugga, handklæðaofni og skápum undir og yfir vaski. Flísar á gólfi.
Þvottaherbergi: Með sturtuklefa, salerni, hvítri innréttingu, handklæðaofni, glugga og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. PVC-veggplötur og vínylgólfefni.
Stór sameiginlegur garður með geymsluskúr. Timburverönd er í afnotum íbúðarinnar samkvæmt samkomulagi eigenda.Eignarhlutfall í húsi og lóð er 57%. Lóðin er 674 fm.Breytt skipulag íbúðarinnar kemur ekki fram á samþykktum teikningum.Að sögn eigenda:Eignin er mjög vel umgengin og hefur verið endurnýjuð að hluta á undanförnum árum.
2021: Nýtt harðparket lagt á hol og tvö svefnherbergi.
2022: Hús og þak máluð að utan og ný niðurfallsrör sett upp.
2023: Eldhús fært inn í alrými stofu og borðstofu. Ný eldhúsinnrétting, helluborð, raflagnir að eldhústækjum og viðbótarrafmagnstafla. Hleðslustöð fyrir rafbíl sett upp (hleðslutækið er í leigu hjá ON).
2025: Nýtt gólfefni lagt í þriðja svefnherbergið og fataaðstaða útbúin með fataskápum og lýsingu. Gólfhiti er í svefnherberginu. Nýr bakaraofn í eldhúsi. Ný upphengd baðinnrétting með vaski og blöndunartækjum á baðherbergi. Rafmagnstafla endurnýjuð.
2026: Þvottaherbergi endurnýjað með nýjum PVC-veggplötum, vatnsheldu vínylgólfefni, sturtuklefa, salerni, baðinnréttingu og speglaskáp með lýsingu. Ný innbyggð uppþvottavél í eldhúsi. Hita- og heitavatnskerfi yfirfarin og hlutar þeirra endurnýjaðir.
Breytt skipulag íbúðarinnar, þar á meðal tilfærsla eldhúss, viðbót svefnherbergis og salernis og sturtu í þvottaherbergi, kemur ekki fram á samþykktum teikningum.