Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega falleg lúxusíbúð á 2.hæð (efstu hæð) á enda í góðu litlu fjölbýlishúsi í Akrahverfinu í Garðabæ. Húsið er lyftuhús en aðeins er ein hæð upp frá aðalinngangi hússins upp á hæðina þar sem íbúðin er á. Í kjallara er góð lokuð bílageymsla og þar er einnig einstaklega góð 22m2 geymsla sem fylgir íbúðinni. Eignin skiptist í: forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi, fataherbergi og sólríkar útsýnissvalir sem snúa í suðvestur og ná útsýni yfir Garðabæinn og út að sjó. í eigninni er einskonar hjónasvíta og er annað baðherbergið þar inn af ásamt fataherbergi. Stutt er út á stofnbrautir, verslun, bakarí, leikskóla, skóla og fjölbrautaskóla. Dásamlegar gönguleiðir í kring. Húsið stendur ekki við stofnbrautir og því sérlega rólegt umhverfi í kringum húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.isSamkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 154,8m2 og þar af 22,1m2 geymsla í sameign. Svalir eru með svalalokun og eru 18m2. íbúðin sjálf er skráð 132,7m2.
Nánari lýsing:Komið er að húsinu á jarðhæð, skráð 1.hæð. Þar er lokaður stigagangur með mynddyrasímakerfi sem leiðir upp að efri hæð hússins, 2.hæð. Íbúðin er á enda og er því með góða glugga í 3 áttir. Lyfta gengur á milli hæða allt frá bílakjallara upp á 2.hæðina. Sérinngangur er af hálflokuðum svalagangi að íbúðinni og engin umgangur er fram hjá íbúðinni frá öðrum íbúum. Gler lokun er að hluta á svalaganginum sem skýlir vel fyrir veðri og vindum.
Forstofa: Komið er inn í forstofuna um sérinngang. Þrefaldur fataskápur sem nær upp í loft er í forstofunni og fallegar flísar á gólf.
Opið alrými með góðum gluggum: setustofa, borðstofa og eldhús.
Borðstofa: Fyrir framan eyjuna er rúmgóð borðstofa með stórum suður gluggum og parketi á gólfi.
Stofa: Setustofan er sérlega björt og rúmgóð með gluggum í tvær áttir. Setustofan er í opnu rými með eldhúsinu og borðstofunni. Parket er á gólfi. Gengið er út frá stofunni á stórar sólríkar suðuvestursvalir (18m2).
Eldhús: Í eldhúsinu er bæði mjög gott skápapláss og mikið vinnupláss á eldhúsbekkjum. Innrétting er á einn góðan vegg og nær upp í loft með efri og neðri skápum, ljósar flísar eru á vegg á milli skápa. ofn er í vinnuhæð. Stór eyja með helluborði, góðu vinnuplássi og mikið af skúffum skilur á milli eldhús og borðstofu. Parket er á gólfi.
Baðherbergi 1: Aðal baðherbergið er út frá alrýminu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum grábrúnum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Baðkar er í enda rýmisins. Stór innrétting er bæði undir vaskaborði og á vegg við hliðina á stórum spegil. Mjög gott borðpláss er við vaskinn. Á vegg á móts við baðherbergis innréttinguna er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Stórt vinnuborð, góðir skápar og vinnuvaskur. Salernið er upphengt. Hiti í gólfi.
Hjónasvíta: (svefnherbergi, baðherbergi og fataherbergi/skrifstofa)
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með góðum gluggi og panoramaglugga fyrir ofan rúm sem snýr í suðaustur og heypir fallegri birtu inn i rýmið. Parket er á gólfi.
Baðherbergi 2: Inn af hjónasvítunni er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með grábrúnum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Sturta er í rýminu. Stór innrétting er bæði undir vaskaborði og á vegg við hliðina á stórum spegil. Mjög gott borðpláss er við vaskinn. Salernið er upphengt. Opnanlegur gluggi og hiti í gólfi.
Fataherbergi: Fataherbergi er einnig inni í hjónasvítunni. Fataherbergið er í dag aðeins nýtt að hluta sem slíkt og að hluta sem skiptiaðstaða/skrifstofa. Hægt er að setja fataherbergið aftur upp eins og því var skilað í upphafi með meira af hengi og hillum (það sem var fjarlægt er til og aðeins þarf að setja það upp). Parket er á gólfi. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi 2: Auka svefnherbergið er mjög rúmgott með fjórföldum fataskáp sem nær upp í loft og parket er á gólfi.
Geymsla: sér geymsla fylgir íbúðinni inn af bílageymslunni, tvöföld hurð er inn í geymsluna og því mjög gott að flytja þar inn stóra sem minni hluti. stærð geymslunnar er 22,1m2. Hægt að nýta sem geymslu eða vinnu/hobby rými.
Bílakjallari: Stæðið í bílakjallara er merkt B03 og er eitt í sér rými og því ekki klesst ofan í aðra bíla. Innstunga er í bílastæðinu þar sem hægt er að hlaða til dæmis rafmagnsbíl og ætti þá einnig að vera auðvelt að setja upp hleðslustöð ef þörf er á. Innstungan er tengd inn á rafmagnsmæli íbúðarinnar.
Bílaþvottaaðstaða: er í bílakjallara
Hjóla og vagnageymslu: er að finna í sameign.
Falleg og vel skipulögð íbúð í rólegu hverfi. Aðeins einn eignandi er af íbúðinni frá því húsið var byggt.
Annar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is