RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG KYNNA í einkasölu: Glæsilega, rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð með stæði í lokaðri bílageymslu. Vandað lyftuhús á Norðurbakkanum í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 116,10 fm og þar af er geymslan skráð 7,7 fm. Íbúðin er á annari hæð nr 203. Sérlega gott skipulag er á íbúðinni.Norðurbakkinn í Hafnarfirði er einstaklega vel staðsett og vinsælt hverfi, stutt er í kaffihús, veitingastaði, banka, verslun og alla aðra þjónustu sem og einstaklega fallegar gönguleiðir.
Útsýni út á sjó frá svölum. ** SMELLTU HÉR og skoðaðu MYNDBAND um eignina Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarný Björg Arnórsdóttir lgf., í 694-2526 / bjarny@remax.is** SMELLTU HÉR og skoðaðu eignina í 3-D, þrívíðu umhverfiÍbúðin skiptist í forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, tvennar svalir, þvottahús og geymsla auk þess er stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri er rúmgott með góðum fataskáp sem nær upp í loft.
Alrými rúmar eldhús, borðstofu og stofu. Útgengi er út á svalir úr alrými með útsýni út á sjó.
Stofan rúmar vel borðstofu í framhaldi af eldhúsi og setu- og sjónvarpsstofu,
Eldhúsið er opið, útbúið góðum heimilistækum. Keramik helluborð í eyju og gufu gleypir yfir. Ofn með burstaðri stáláferð í vinnuhæð og uppþvottavél fylgir. Góð eikarinnréttingu og útgengt út á svalir með útsýni út á sjó.
Þvottahús er innaf eldhúsi með hillum, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sjónvarpshol er vel staðsett fyrir miðju íbúðar og rúmgott.
Baðherbergi er með eikarinnréttingu, flísalagt í hólf og gólf með baði og sturtuklefa.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi með fataskápum og útgengt út á svalir með útsýni út á sjó.
Allar innréttingar og innihurðir íbúðarinnar eru spónlagðar með eik og ljúflokum á eldhúsinnréttingu. Gólfefni eru harðparket og flísar.
Sér geymsla tilheyrir íbúðinni (7,7 fm) staðsett á jarðhæð.
Húsið er vandað og klætt viðhaldslítilli klæðningu að utan, mynddyrasími er í anddyri. Þrjár íbúðir eru á hverri hæð. Sér bílastæði og geymsla fylgja íbúðinni, vel staðsett. Í bílageymslu er aðstaða til að þvo bíla, sameiginlega vagna- og hjólageymsla og vel frá öllu gengið.
Norðurbakkinn í Hafnarfirði er einstaklega vel staðsett og vinsælt hverfi, stutt er á kaffihús, veitingastaði, banka, verslun og þjónustu sem og einstaklega fallegar gönguleiðir.
Fasteignamat árið 2026 er 91.550.000
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk