Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Nýtt og glæsilegt endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr að Úugötu 18 í Mosfellsbæ.Birt stærð eignarinnar er 231,0 fm, þar af er íbúðarhluti 197,3 fm og bílskúr 33,4 fmÁ neðri hæð er anddyri, bílskúr, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla.
Á efri hæð er hjónaherbergi með sér baðherbergi, svefnherbergi, herbergi/sjónvarpshol, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa.
Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
.:Hér má sjá smá kynningarvideo af eigninni með húsgögnum:.// 5 Svefnherbergi
// Sjónvarpsrými, hægt að breyta í svefnherbergi
// 3 Baðherbergi
// Innbyggður bílskúr
// Möguleiki að stúka af aukaíbúð
// Skólar í göngufæriSkilalýsing er eftirfarandi:Utanhúss: Raðhús á tveimur hæðum með bílskúr byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni.
Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu máluð og timburklætt að hluta með bandsagaðri thermo wood timbri.
Þak er Filigran þak með ásteypulagi og bræddum tjörupappa, xpx einangrun og fargi. Viðsnúið þak.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar/svalahurðar og svört bílskúrshurð.
Lóð er skilað eins og hún er í dag. Á lóðinni er gert ráð fyrir bílastæðum og sorpskýli fyrir 3 sorpílát.
Svalahandrið: Dökkt gler
Stigahandrið Úti: Stál handrið máluð svört.
Innanhúss: Gólf eru steypt, röraslödduð og flotuð.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir úr lemga hleðslusteinum frá Steypustöðinni, sparslaðir, grunnaðir og málaðir. Veggir á baðherbergi og snyrtingu eru spartlaðir niðrí hurðahæð og ómeðhöndlaðir þar fyrir neðan.
Loft: Spörtluð og máluð.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar, rofar og útiljós frágengin, annarsstaðar komin perustæði.
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt.
Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum (komið á sína staði en ekki vegghné). Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar. Teikningar gætu hafa breyst lítillega og verður skilað inn reyndar teikningum fyrir afhendingu.
- Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda rúmlega tilbúin til innréttinga á byggingarstigi B3, en búið er að full mála og ganga frá rafmagni.
- Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsamningKaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar.
Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.
Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is