Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Einkar falleg og björt enda íbúð, 128,5 fm 4ja herbergja íbúð á 3 hæð með tvennum svölum og bílskúr við Álftarima 1 á Selfossi.
Eignin er skráð 128,5 og þar af er bílskúr 22,3 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými með eldhúsi og stofu, geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Húsið var tekið í gegn að utan fyrir nokkrum árum og er í ágætu ástandi.Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D Það sem er nýbúið að gera að innan og utan.Gólf flotað, handsparslað og lakkað.
Öll íbúðin heilmáluð, veggir og loft.
Nýjar hurðar á öllum herbergjum.
Eldhúsinnrétting máluð.
Nýir tenglar og rofar.
Nýr fataskápur í svefnherbergi
Veggur fjarlægður einu svefnherbergi breytt í sjónvarpshol ekkert mál að breyta til baka.
Ný blöndunartæki á baði.
Nýir gluggar og opnalegfög við stóru svalirnar.
Gólfplata á báðum svölum flotaðar.
Múrað í stóru svalirnar og þær lagaðar og málaðar.
// Bílskúr.
// Tvennar svalir til suðurs og vesturs.
// Búið að gera mikið fyrir íbúðina.
// Stór sameiginlegur garður.
// vel staðsett eign.
// Stutt í alla þjónustu.
Nánari lýsing:Forstofa: Er rúmgóð með fataslá hægt að setja upp fataskáp.
Stofa/borðstofa: Er í opnu rými við eldhús, úr stofu er gengið út á stórar suðursvalir.
Hjónaherbergi: Er mjög rúmgott og er með fataskáp og með útgengi út á vestursvalir.
Barnaherbergin: Eru tvö, bæði rúmgóð, búið að breyta öðru í sjónvarpsherbergi, mjög auðvelt að breyta til baka.
Baðherbergi/þvottaherbergi: Er rúmgott með innréttingu, baðkar með sturtu og tengi fyrir þvottavél . Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Eldhús: Er með fallegri dökkri innréttingu beggja megin með miklu skápaplássi.
Geymsla: Er 4,6 fm og er staðsett í sameign.
Hjóla og vagnageymsla: Er niðri og er mjög snyrtileg.
Bílskúr: Mjög rúmgóður, er með hita, kalt vatn, rafmagn og fjarstýringu til að opna. .
Frábær staðsetning miðsvæðis á Selfossi, Stutt í grunnskóla, leikskóla, FSu, verslanir, íþróttavöllinn og sundlaugina. Auk miðbæjarins með öllu sínu mannlífi og veitingastöðum.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.