Vernharð Þorleifsson lgf. hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: Afskaplega fallega þriggja herbergja 86 fm. íbúð á fyrstu hæð á eftirsóttum stað við Fornhaga 13 í Vesturbænum í Reykjavík. Íbúðin sjálf er 79,2 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu með útgengt út á suður svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla 6,8 fm. er staðsett í sameign. Um er að ræða einstaklega fallega og snyrtilega eign. Upplýsingar veita: Vernharð í síma 699 7372/venni@remax.is og Magga í síma 698 7494/magga@remax.is Nánari lýsing: Forstofa er með tveimur innbyggðum fataskápum. Eldhús er með fallegum hvítum innréttingum sem eru upprunalegar. Úr eldhúsi er gengið út á svalir til suðurs sem snúa út í garð. Borðstofa og stofa eru í sérrými. Útsýni er yfir sameiginlegan garð. Stórir gluggar eru í stofu og eldhúsi sem hleypa mikilli birtu inn. Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi er mjög rúmgott með innbyggðum fataskápum. Barnaherbergi er minna með litlum innbyggðum skápum. Fallegt Kährs viðarparket er í stofu, herbergjum og forstofu. Upprunalegir fataskápar með sérsmíðuðum viðarskúffum og skrautlistar á hurðarkörmum. Baðherbergi er með hvítri vaskinnréttingu og sturtuklefa. Flísalagt upp á miðjan vegg og gólf. Sérgeymsla er staðsett í sameign 6,8 fm. ásamt sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Garður er sameiginlegur, vel hirtur og snyrtilegur, m.a. með leiktækjum, trampólín og matjurtagarði. Nýbúið að setja upp grillaðstöðu fyrir íbúana í garðinum. Garðurinn hefur fengið fjölda viðurkenninga í gegnum tíðina og mikil stemming getur myndast á góðviðrisdögum. Bílastæði sameiginleg, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er á lóð.
Húsið er fallega hannað og vel við haldið. Upprunalegar innréttingar og hurðar hafa fengið að halda sér að hluta. Virkt og gott húsfélag. Stigagangur og sameign hússins er öll hin snyrtilegasta. Að sögn íbúa hefur skemmtilegt samfélag myndast í Fornhagablokkinni svokölluðu. Skemmtilegar upplýsingar um blokkina er á vefsíðunni https://fornhagablokkin.wordpress.com/
2022-2023 voru töluverðar framkvæmdir á vegum húsfélags m.a. gluggaskipti, múr- og þakviðgerðir. Þakjárn endurnýjað og húsið endursteinað. Skipt um glugga og gler að hluta. Ný rafmagnstafla í sameign. 2019 skipt um hurðir í sameign út í garð og sett upp hleðslustöð á bílastæði. Framkvæmdir sem búið er að samþykkja og verða greiddar af seljanda. Endurnýja á dren, frárennsli og neysluvatnslagnir. Einnig verður inntaksgrind neysluvatns endurnýjuð og komið fyrir neysluvatnsvarmaskipti og hringrás á heitu vatni. Eign með frábæra staðsetningu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Meðal annars er göngufæri í Melaskóla, Hagaskóla og Háskóla Íslands. Sundlaug vesturbæjar og Melabúðina. Einnig eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.