RE/MAX Ísland logo
Opið hús:15. apríl kl 16:30-17:30
Skráð 8. apríl 2026
Söluyfirlit

Eikarás 13

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
217.4 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
177.900.000 kr.
Fermetraverð
818.307 kr./m2
Fasteignamat
166.450.000 kr.
Brunabótamat
95.150.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2002
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2257427
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt (2002).
Raflagnir
Upprunalegt (2002).
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2002).
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2002).
Þak
Upprunalegt (2002).
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir glæsilegt, mjög vel staðsett 4-5 herb. raðhús (innst í botnlanga) að Eikarás 13 í Garðabæ. Mikil lofthæð að hluta og frábært óhindrað útsýni m.a. yfir Gálgahraun, Snæfellsjökull, Bessastaðir, Reykjanes, Keilir og Álftanes. Sérsmíðaðar innréttingar í öllu húsinu frá Brúnás, sér verönd og garður, tvö baðherbergi, einstakt útsýni og granítborðplötur í eldhúsi og baðherbergi. Aðkoma að húsinu er mjög góð, þrjú hellulögð bílastæði með hitalögnum framan við hús og lýsing er í veggjum við aðkomu að húsinu. Eignin er innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta og úr vönduðum efnum. Húsið sjálft er steinað með marmarasalla, einnig með gegnheilum Sedrusvið og þakkanti úr áli og er því viðhaldslítið.
Aukin lofthæð er að hluta á efri hæð hússins og lofthæð á neðri hæð hússins er meiri en gengur og gerist. Stórir gluggar að hluta, suðursvalir, auk skjólsællrar viðar verandar út af neðri hæð.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, skála/herbergi, stofu, borðstofu, eldhús, tvö herbergi, sjónvarpsrými, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymslu og bílgeymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 217,4 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

 
Smelltu hér og þú færð söluyfirlitið strax
Nánari lýsing efri hæðar (beint inn af stétt framan við hús):
Forstofa
 er inn af hellulagðri stétt með snjóbræðslu. Inni er komið inn á virkilega rúmgóða opna forstofu með ljósum gólfflísum og gólfhita. Inn af forstofu er skáli og er auðveldlega hægt að útbúa þar herbergi með einum vegg.
Skáli inn af forstofu er 8,6 m2. Er nú opið rými með forstofu en einfalt að reisa létta veggi og útbúa þar herbergi. Gluggi og opnanlegt fag út að bílastæði. Ljósar gólfflísar.
Gestasalerni er inn af forstofu. Upphengt salerni og handlaug. Ljósar flísar upp vatnskassa og á gólfi.
Stofa og borðstofa er með einstakri lofthæð (hátt í 5 m.) og innfelldri lýsingu. Stórir gluggar til suðurs og út frá stofu er gengið út á bogadregnar svalir með einstöku útsýni, m.a. út að Keili og Snæfellsjökli. Parket er á gólfi stofu.
Eldhús er inn af stofrými og er opið inn í það á tvo vegu. Sérsmíðuð Brúnás innrétting með granít á borðum. Helluborð, háfur, ofn og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Ljósar gólffísar.
Svalir eru út frá stofu, með einstöku útsýni til suðurs að Keili og vesturs að Gálgahrauni, Bessastöðum og Snæfellsjökli. Að hluta til er glerveggur til að auka á útsýnið. Þakið nær yfir svalir og veitir gott skjól. Flísar á svalargólfi.
Bílgeymsla er 26,9 m2 og með góðri lofthæð og 7,5 m2 millilofti sem telur ekki til fermetra. Milliloft nýtist vel sem geymslurými. Sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari. Heitt og kalt vatn, niðurfall í flísalögðu gólfi. 
Stétt og bílaplan framan við hús (rúmar 3 bíla) er hellulagt og með snjóbræðslu. Skýli fyrir tvær ruslatunnur eru til hliðar við bílskúr.

Nánari lýsing neðri hæðar:
Gengið er úr holi efri hæðar niður á neðri hæð,
steyptur parketlagður stigi með fallegu handriði og hertu gleri frá Samverk. Komið er niður í parketlagt bjart rými. Undir stigapalli er einnig rými.
Hol er rúmgott og leiðir mann inn í allar vistarverur neðri hæðar. Parket á gólfi.
Millirými tekur við af holinu og er þaðan gengið út í garð. Hægt er að afmarka þetta rými með einum auka vegg og útbúa þar herbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Það er með baðkari, hvítum handklæðaofni, upphengdu salerni og góðri veggfestri skápaeiningu með innbyggðri lýsingu, speglaskáp og handlaug í ljósri granít borðplötu. Loftið er tekið niður fyrir innfelldri lýsingu. Ljósar gólfflísar, gólfhiti og niðurfall í gólfi undir innréttingu. 
Herbergi I er öðru megin við millirýmið. Rúgott herbergi með hvítum fataskáp sem fyllir einn vegg. Gluggi vísar út í garð til suðurs. Parket á gólfi.
Herbergi II er gegnt hinu svefnherberginu og er einni rúmgott, með glugga út í garð og fjórföldum hvítum fataskáp. Parket á gólfi.
Þvottahús er einstaklega stórt. Innst í því rými, þar sem þreplaus sturta er, er opnanlegt fag. Hvítur stór handklæðaofn og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Léttir hvítir skápar eru ofan á ljósum gólfflísum með gólfhita.
Geymsla/sjónvarpsrými er opið stórt rými og getur nýst einnig sem skrifstofa, fataherbergi eða tómstundarými. Í enda rýmisins er hvítur 2,5 m2 geymsluskápur með rennihurðum. Parket á gólfi.
Viðarverönd úr Lerki er út frá millirými. Einnig gróinn garður með kvistum og opið grassvæði tekur þar við.

Gott að vita:
Gólfflísarnar eru frá Vídd og eru 44x44 cm og parketið er niðurlímt gegnheilt olíuborið eikarparket.
Sedrusviður í útihurð, bílskúrshurð og á svalahandriði.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Byggt 2002
26.9 m2
Fasteignanúmer
2257427
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Opið hús:04. des. kl 12:00-12:45
Image
Opna eign
Hestamýri 4B
225 Garðabær
188.4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
522
992 þ.kr./m2
186.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:04. des. kl 12:00-12:45
Image
Opna eign
Hestamýri 4A
225 Garðabær
182.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
422
932 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:04. des. kl 12:00-12:45
Image
Opna eign
Hestamýri 4A
225 Garðabær
192.7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
322
949 þ.kr./m2
182.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:04. des. kl 12:00-12:45
Image
Opna eign
Hestamýri 3B
225 Garðabær
185.3 m2
Fjölbýlishús með lyftu
322
998 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin