RE/MAX Ísland logo
Skráð 20. júní 2026
Söluyfirlit

Skipasund 84

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
70.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
849.645 kr./m2
Fasteignamat
53.200.000 kr.
Brunabótamat
37.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þorsteinn Ólafs
Þorsteinn Ólafs
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1958
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2020568
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ofnalagnir og ofnar innan íbúðar og neysluvatn inn í eldhús talið endurnýjað 2014
Raflagnir
Talið endurnýjað að hluta 2003-2007, ásamt tenglum og öryggjum í rafmagnstöflu.
Frárennslislagnir
Frárennsli fóðrað að hluta og skolað 2014. Brunnur talinn nýr frá þeim tíma. Dren myndað og skolað 2014.
Gluggar / Gler
Gluggar og gler endurnýjað 2003-2007
Þak
Þak yfirfarið og málað 2014
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Engar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX kynnir fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð að Skipasundi 84 í Reykjavík. Íbúðin er í þríbýli. Stór og gróinn garður í skjólsælu hverfi. Göngufæri er í fleiri en einn leikskóla, grunnskóla, hverfaverslun o.fl. þjónustu.

Eignin skiptist í forstofu, bjarta og góða stofu, eldhús, tvö stór svefnherbergi með fataskápum, gang og baðherbergi auk geymslu í sameign og sameiginlegs þvottahúss. Íbúðin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 70,5 m2.  Hér má sjá 3D af íbúðinni:


Nánari lýsing:
Forstofuhol er inn af anddyri við útidyrahurð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf sem flæðir um flest rými og er án þröskulda. Parket var lagt nýtt fyrir um tveimur árum.
Stofa er með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Eldhús með fallegri HTH eldhúsinnréttingu og háf.Helluborð var endurnýjað 2022. Stæði og tengi fyrir uppþvottavél inni í innréttingu sem fylgir með.. Ísskápur getur fylgt. Dökkar korkflísar á gólfi.
Herbergi I er rúmgott með djúpum hvítum viðarfataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II er með ljósgráum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuklefa. Nýlegt salerni. Handlaug í hvítri innréttingu. Veggfestur speglaskápur yfir handlaug og innfelldur skápur bak við hurð. Gráar veggflísar og annarskonar gráar gólfflísar.
Geymsla er skv. teikningum þar sem nú er svefnherbergi. Rými undir stiga í sameign nýtist sem geymsla.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.- hver með sína vél.
Garður er stór og gróinn.
Hver íbúð er með sér hitamæli.

Seljandi hefur aðeins búið í eigninni í stuttan tíma og byggir lýsinguna á henni að hluta á upplýsingum frá fyrri eiganda. Talið er að skipt hafi verið um neysluvatnslagnir inn í eldhús, skipt um frárennsli að hluta og fóðrað og frárennslislagnir myndaðar og skolað út úr þeim í kringum 2014. Drenið hafi verið myndað, endurnýjað að hluta og settur aðgangsbrunnur framan við hús. Ofnar í íbúð hafi voru endurnýjaðir 2014 og gamlar ofnalagnir aflagðar. Rafmagn endurnýjað að hluta á árunum 2003-2007 og voru þá tenglar endurnýjaðir samhliða sem og rafmagnstafla. Á þeim árum hafi einnig verið skipt um gler í íbúð. Húsið hafi verið múrviðgert og málað árið 2015.

Úr eldri sölulýsingu frá 2017 frá fyrri eiganda:
"Íbúðin og heildareignin hefur verið mikið endurnýjuð í gegnum tíðina og vel haldið við. Skipulag eignarinnar er ekki í samræmi við samþykktar teikningar, eignin sem er skráð 2ja herbergja er í dag 3ja herbergja. Hjónaherbergi er skráð sem geymsla en hefur frá upphafi verið nýtt sem herbergi. „Gangur“ merktur á teikningu er innan íbúðar og nú hluti af holi og hefur það einnig verið þannig frá upphafi. Má ætla að eignin sé stærri í fm en upp er gefið. Geymsla sem þessi íbúð nýtir sér er skráð í sameign og ekki í fm tölu eignarinnar en hefur ávalt verið nýtt fyrir íbúð 001. Eignin er mjög vel skipulögð, falleg og með vandaðar innréttingar."

Viðhaldssaga úr eldri sölulýsingu frá 2017 frá fyrri eiganda:
"2003-2007 - Nýtt rafmagn í alla íbúðina, öllum tenglum og slökkvurum skipt út og rafmagnstafla færð og sett ný tafla. Gluggar og gler endurnýjað í allri íbúðinni.
2013 - Baðherbergi tekið í gegn.  Eldhús allt tekið í gegn, ný HTH innrétting og öll tæki ný AEG. Korkur settur á gólfið. 
2014 -  Gluggar að innan og innihurðir pússaðar og lakkaðar háglans hvítt. Þak yfirfarið og málað, allt í góðu standi.
Dren umhverfis húsið grafið upp að hluta til, myndað allan hringinn og hreinsað út. Einnig var skipt út hluta þess og settur aðgangsbrunnur framan við hús í bæði dren og skólp, einnig eru aðgangsrör fyrir aftan hús og undir svölunum.
Skólplagnir myndaðar og grafnar upp að hluta til, til að skipta um það sem ekki var í lagi og gera endurbætur. Restin var svo fóðruð af Proline og kerfið myndað í heild sinni eftir viðgerð, upptökur af því eru til ásamt öllum reikningum frá Proline. Áður hafði verið skipt um skólp undir baðherbergi og eru þar  PVC rör
Öllu gamla ofnakerfinu lokað og allt vatn sogið úr því, lokað og múrað fyrir. Nýtt lagt í alla íbúðina og nýjir ofnar (íslensk framleiðsla)
Niðurföll og rennur endurnýjaðar að hluta til.
Neysluvatnslögn fyrir heita vatnið endurnýjuð inní eldhús
Nokkur lög af gömlum gólfefnum tekin af allri íbúðinni (ekki bað og eldhús) og gólfplatan slípuð og grunnuð. Nýtt Harðparket frá Birgisson lagt á íbúðina. Cat 5 dregið í stofu og herbergi.
Íbúðin öll máluð að innan.
2015 - Húsið allt tekið í gegn að utan, sprunguviðgert og allt málað. Allir gluggar yfirfarnir að utan, pússaðir upp og málaðir (hálfþekjandi). Útihurð yfirfarin og máluð."

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212 / to@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk. 

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Laufrimi 26
112 Reykjavík
67.4 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
211
889 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hjallavegur 14
104 Reykjavík
55.2 m2
Tvíbýli
211
1,040 þ.kr./m2
57.400.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Ásvallagata 55
101 Reykjavík
57 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
1,051 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Goðaborgir 8
112 Reykjavík
67 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
211
891 þ.kr./m2
59.700.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin