RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: Einstaklega fallega 2ja herbergja íbúð á 4 hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu.
***SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D***Nánari lýsing:
Forstofa með parket á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi. Eldhús með fallegri ljósri innréttingu frá Axis með AEG tækjum og t.f. uppþvottavél.
Stofa og borðstofa er rúmgóð með útgengi út á
góðar svalir með einstaklega fallegu útsýni í átt til fjalla Krísuvíkur.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með "walk in" sturtu, upphengdu wc, handklæðaofn, fallegri innréttingu, t.f. þvottavél og þurrkara og auka vaski með góðu vinnuborði.
Sér geymsla er í sameign með opnanlegum glugga og sameiginleg vagna og hjólageymsla.Gott system air lofræstikerfi er í íbúðinni. Leiksvæði/ leikvöllur fyrir börnin í garðinum.
Stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla ,verslanir og útvistarsvæði. Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.