Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 5 herbergja íbúð í lyftuhúsi að Skektuvogi 6 í Reykjavík. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og er það vel staðsett og rúmgott. Lyfta er milli hæða. Sólríkar SA-svalir eru út frá stofu. Nýtt parket er á íbúðinni sem og nýjar innihurðir. Mikið er um barnafjölskyldur í húsinu og inni í garðinum eru leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. Hraðaþrengingar eru í götunum, sérmerktir hjólastígar og góðir göngustígar eru inni í hverfinu. Einnig er yfirbyggð göngubrú með lyftu yfir Sæbrautina og auðvelt er að fara um stíga inn í Elliðaárdalinn eða Laugardalinn. Einnig er leikskóli innan hverfis. Öll helsta þjónusta er í nánasta nágrenni.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, fjögur herbergi, hol, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 140,6 m2. Stæði í bílageymslu er aukalega, s.s. ekki inni í fermetratölu.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!Smelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing:
Forstofa er inn af svalargangi. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf. Ljós innfelldur fataskápur fyrir yfirhafnir.
Eldhús er með ljósri innréttingu á þremur veggjum. Lýsing er undir efri skápum. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél, hvort tveggja fylgir. Ofn, helluborð og vifta. Tæki eru Electrolux.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Parket er á gólfum og útgengi er út á rúmgóðar SA-svalir með harðvið á svalargólfi.
Herbergi I, II og III eru öll með tvöföldum ljósum fataskápum sem ná upp í loft, öll rúmgóð og með parketi á gólfum.
Herbergi IV er með fjórföldum ljósum fataskáp sem nær upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með þreplausri sturtu með gleri, hvítum handklæðaofni, upphengdu salerni, ljósri skápaeiningu undir handlaug og veggfestum speglaskáp. Ljósar gólfflísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús er innan íbúðar. Veggfestar flex snúrur á vegg. Ljós innrétting með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ljósdrapplitaðar gólfflísar.
Bílageymsla er undir húsinu á tveimur hæðum og er stæði íbúðar í þeim neðri, merkt S6-208. Mjög grúmgott stæði við opinn enda þar sem rampur er. Rafmagnshleðslustöð í stæði fylgir.
Geymsla er sér í sameign. Birt stærð 21,4 m2.
Hjóla- og vagnageymslur eru tvær og eru í sameign.
Lyfta er milli hæða og er stigagangur teppalagður. Utanáliggjandi svalargangar eru steyptir með skjólgleri. Lyklalaust aðgengi er í sameign.
Garður er gróinn með grasflötum og hellulögðum stéttum, viðarpöllum með handriðum og leiksvæði fyrir börn. Kvöldlýsing er við göngustíga í garðinum.
Djúpgámar eru framan við hús. Einstaklega snyrtileg útfærsla á flokkun á rusli.
Rafmagnshurðaopnarar eru á helstu hurðum í sameign.
Innréttingar eru frá GKS ehf.
Innihurðar eru frá Parka og
parket er frá Harðviðarval.
Flísar eru frá Álfaborg.
Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með álklæðningu m/innbrenndum lit á ál-undirkerfi.
Byggingarðaili er ÞG Verk ehf.Leikskólinn ÆvintýraborgVogaskóliMenntaskólinn við Sund-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 8640061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.