RE/MAX Ísland logo
Opið hús:10. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 5. nóv. 2026
Söluyfirlit

Tjarnarstígur 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
109.9 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
863.512 kr./m2
Fasteignamat
96.050.000 kr.
Brunabótamat
56.450.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1945
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2068562
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Opnanlegt fag í stofu er með brotna rúðu (lokað á snúru). Þakgluggar voru ekki endurnýjaðir.
Kvöð / kvaðir
Teikningar á hækkun þaks og bílskúr voru samþykktar 2017 en mögulega þarf að sækja um byggingarleyfi að nýju.
Brynjar Ingólfsson MSc. og löggiltur fasteignasali kynnir: Bjarta og fallega efri hæð ásamt risi og sérinngangi á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni og tvö rúmgóð herbergi í risi.

*** Bílskúrsréttur fylgir eigninni (ca 30 m²) og möguleiki á stækkun risins með svölum á rishæð (íbúðin myndi stækka í 137 m²) *** Teikningar til staðar ***

– Sérinngangur
– Björt og rúmgóð stofa og borðstofa
– Tvö svefnherbergi á hæðinni og tvö rúmgóð herbergi í risi
– Bílskúrsréttur – teikningar og samþykki fyrir bílskúrsbyggingu liggja fyrir
– Möguleiki á að taka þátt í bílskúrsframkvæmdum með nágranna
– Stækkunarmöguleikar í risi og möguleiki á rúmgóðum svölum
– Hús og þak málað árið 2023


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Gangur er rúmgóður með flísum á gólfi og ljósum skápum með góðu geymslurými.
Eldhús er rúmgott með fallegri sérsmíðaðri innréttingu, góðu skápaplássi og viðarborðplötu. Flísar eru á gólfi og á milli efri og neðri skápa.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með gegnheilu eikarparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með gegnheilu parketi á gólfi og hvítum fataskápum með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi er með gegnheilu parketi á gólfi og upprunalegum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, flísalagðri sturtu, upphengdu salerni, ljósri innréttingu, handklæðaofni og glugga.

Ris: Stigi liggur frá gangi upp í ris þar sem eru tvö rúmgóð herbergi. Teikningar af stækkun risins liggja fyrir.

Þvottahús er í sameign.

Bílskúrsréttur og byggingarmöguleikar:
Bílskúrsréttur fylgir eigninni og liggja teikningar og samþykki fyrir bílskúrsbyggingu fyrir. Nágranni stendur nú í bílskúrsframkvæmdum og er möguleiki á að taka þátt í þeim og byggja bílskúr fyrir þessa eign samhliða, samkvæmt nánara samkomulagi.
Samkvæmt upplýsingum seljanda er einnig möguleiki á að hækka þak í stíl við hús nr. 3. Við slíka breytingu gæti flatarmál íbúðar orðið um 137 m² í stað um 110 m². 

Viðhald og endurbætur
2010: Gert var við sprungur í húsinu og það málað. Um svipað leyti voru ofnalagnir endurnýjaðar og skipt um hluta ofna. Einnig var skipt um glugga og gler á aðalhæð eignarinnar.
2011: Skólplagnir voru endurnýjaðar undir húsinu og út í brunn. Skipt var um hluta af hellum á lóð.
2015: Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð eftir hönnun Valgerðar Á. Sveinsdóttur innanhússarkitekts. Útitröppur voru lagfærðar og endurmúraðar. Um þetta leyti var einnig dregið í nýtt rafmagn.
Um 2020: Drenað var í kringum húsið og hitaveitugrindur yfirfarnar.
2024: Húsið var málað að utan og þakið málað.
Aðrar endurbætur: Rafmagnstafla hússins var endurnýjuð og nýr stigi upp í ris sérsmíðaður. Skorsteinn var fjarlægður og þakið yfirfarið. Samkvæmt sölulýsingu frá 2021 hafði lóðin framan við húsið verið grafin upp og sléttuð og kapall lagður til undirbúnings fyrir bílahleðslustöð.

Falleg og vel skipulögð eign með sérinngangi, rúmgóðum alrýmum, bílskúrsrétti og áhugaverðum stækkunarmöguleikum á vinsælum stað á Seltjarnarnesi.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 30
104 Reykjavík
122,4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
812 þ.kr./m2
99.400.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hverfisgata 88
101 Reykjavík
97,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
997 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 38
104 Reykjavík
93,9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
1.010 þ.kr./m2
94.800.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 46 - Íbúð nr. 401
104 Reykjavík
88,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1.121 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin