EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARANánari upplýsingar veitir Guðný Þorsteins, Löggiltur fasteignasali, í síma 7715211, tölvupóstur gudnyth@remax.is
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÝVÍDD.
Re/Max ásamt Guðnýju Þorsteins löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og bjarta 3gja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með góðum suður svölum ásamt bílastæði í kjallara, bílastæði eru einnig við hús, hitalögn er í að keyrslu að bílageymslu. Eignin er á 3. hæð í viðhaldslitlu lyftuhúsi. Falleg eign í góðu og barnvænu hverfi.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 75.350.000 kr.Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, borðstofu og stofu í sameiginlegu rými með útgengi á góðar suður svalir, 2 svefnherbergjum, baðherbergi ásamt sér þvottahúsi. Bílastæði er í upphituðum kjallara, sér geymsla er í sameign ásamt vagna- og hjólageymslu.
Samkvæmt Fasteignayfirliti er íbúðin 92,8fm ásamt 8,9fm geymslu
samtals 101,7fm við það bætis 11,2fm svalir ásamt bílastæði í kjallara 25,3fm að stærð.
Nánari lýsing:Forstofa: Er með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús: Er með innréttingu á tvo vegu sem nær upp í loft, tengi fyrir uppþvottavél, opnanlegur gluggi, flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Eru í flæðandi, björtu og rúmgóðu rými með útgangi er út á suður svalir, parket á gólfi.
Svalir: Eru 11,2fm að stærð og snúa til suðurs.
Herbergi I: Er rúmgott með fjórföldum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Herbergi II: Er gott með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, handklæðaofn ásamt upphengt salerni.
Þvottahús: Er innan íbúðar, skápar fyrir ofan vélar, flísar á gólfi.
Bílastæði: Er 25,3fm að stærð
með hleðslustöð og er í upphituðum kjallara.
Geymsla: Er 8,9fm að stærð og í sameign.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.Frábær staðsetning og ýmislegt í boði í fallegu umhverfi:Íþróttamiðstöðin Kórinn er skammt frá þar sem HK býður upp á ýmiskonar íþróttaiðkun. Hörðuvallaskóli er í göngufæri sem og 2 leikskólar í Baugakór, Baugur og Kór, einnig er leikskólinn Austurkór í Kórahverfi. Stutt er í íþróttamiðstöðina Versali þar sem hægt er að fara í sund í Salalauginni og einnig er Gerpla með æfingaaðstöðu fyrir fimleika. Krónan er í Vallakór og einnig er þjónustukjarni í Ögurhvarfi þar sem er t.d. Bónus, WorldClass og Reebok. Þjónustukjarni er við hliðina á Salalaug þar sem er Heilsugæslustöð, Apótek og Nettó Matvöruverslun, einnig er stutt í Smáralind og Smáratorg. Fyrir útivistina er einnig fjölmargt í boði. Heiðmörkin með öllum sínum útivistarmöguleikum er rétt handan við hornið, Vatnsendavatn og Elliðavatn í göngufæri sem og golfvöllur GKG, einnig er Guðmundarlundur þarna skammt undan.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.