RE/MAX og Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu BUGÐUFLJÓT 9, LAGER- OG IÐNAÐAHÚSNÆÐI.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birtur grunnflötur eignar 206,5 fm nánar tiltekið eign merkt 010202. Milliloft er um 130 fm sem er ekki skráð í fermetra húsnæðisins.
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan. Álklætt, byggt árið 2020.
Lofthæð bilsins er um 4 metrar við útveggi og 9 m upp í mæni. Innkeyrsluhurðin er 3,95 m á hæð og 3,9 m á breidd.
Búið er að setja upp milliloft sem er í kringum 130 fermetrar. Milliloftið skiptist í eldhús/skrifstofa, kaffiaðstöðu og geymslurými ásamt miðjurými. Timbur stigi er upp í þetta rými.
Sérafnotareitur fylgir bilinu og afmarkast hann af breidd bilsins og nær um 10 metra fram.
Björt og flott eign, á góðum stað sem er hægt að afhenda við kaupsamning.Seljandi skoðar skipti á minni eign/iðnaðarbili á höfuðborgarsvæðinu. Frekari lýsing:
Fyrsta hæð:Steypt plan fyrir framan hús. Stór innkeyrsluhurð og inngönguhurð til hliðar.
Gólfefni á 1.hæð er epoxy-efni.
Baðherbergi með sturtu, epoxy á gólfum og upp á miðja veggi.
Þvotta og geymsluherbergi er með epoxy á gólfi.
Salurinn er stór og bjartur og mjög hátt til lofts á um 1/3 hluta bilsins. Led lýsing er í loftum
Útgengt út á stórar svalir til norðurs.
Á milli neðri og efri hæð/milliloft er timburstigi.
Milliloft, ca 130 fm. er ekki inn í fermetrum:Skiptist í 3 rými, sjá teikningu.
- það á eftir að ganga frá eldhúsinnréttingu á millilofti, sjá teikningu.
- það á eftir að ganga frá salerni á efri hæð.
Mögulega hægt að gera geymsluloft yfir hluta millilofts.
Bjart og flott eign sem er hægt að afhenda við kaupsamning.Seljandi skoðar skipti á minni eign á höfuðborgarsvæðinu. -----------------------------------------
Húsið er skáð á byggingarstigi B3 og matstigi 8 og afhendist þannig. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali á netfangið gudrun@remax.is í síma 820-0490.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.