## SÖLUSÝNING LAUGARD. 31 JAN MILLI KL.10-16 ##REMAX kynnir: Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna að Hafnarbraut 18, 200 Kópavogi.Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48m2 til 194 m2. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum.
Íbúðirnar skilast innréttaðar með fallegum sérsmíðuðum innréttingum frá Brúnás, vönduðum eldhústækjum og sérstæðu loftskiptikerfi. Aukin lofthæð í öllum íbúðum hússins 270-290 cm. Íbúð 504: Stórglæsileg þriggja herbergja,
156,9 m2 útsýnisíbúð á efstu hæð ásamt stæði í bílageymslu.
Þaksvalir alls 50,4 m2 og þar af 14,8 m2 með
svalalokun og tengi fyrir heitan pott. Vönduð Bambus klæðning á svalagólfi.
Hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi,
290 cm lofthæð, gólfhiti og stórir gólfsíðir gluggar.
Upplýsingar um allar íbúðirnar má finna hér:
SöluvefurBókið skoðun, sýnum alla daga.Elvar Frímann Frímannsson, Löggitur fasteignasali, í síma 659-6606 / elvar@remax.is
Stefán Jarl Martin, Löggiltur fasteignasali, í síma 892-9966 / stefan@remax.is
Helstu eiginleikar:- Loftskiptakerfi sem er sjálfstætt fyrir hverja íbúð og tryggir íbúum bestu mögulegu hita- og loftgæði allan ársins hring
- Innréttingar eru sérsmíðaðar, framleiddar og uppsettar af Brúnás
- Ítalskar kvarts 20mm þykkar borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum
- Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél frá AEG
- Airforce spanhelluborð með innbyggðri viftu í eldhúseyjum
- Hreinlætistæki eru Brushed Graphite frá Grohe
- Sér þvottahús í langflestum íbúðum með veglegum innréttingum
- Aukin lofthæð í öllum íbúðum hússins 270-290 cm.
- Gólfsíðir gluggar í alrýmum
- Hús klætt að utan með vandaðri álklæðningu sem veðurkápu
- Svalalokun/skýli í völdum íbúðum
- Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni
- Tengi fyrir rafmagnspott í sérvöldum íbúðum.
- Stæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir flestum íbúðum
Húsið: Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða.
Skipulagsgjald:
Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.