RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Rúmgott 188,1 m² einbýlishús með bílskúr á stórri 1.300 m² lóð við Álmholt í Mosfellsbæ. Eignin stendur við rólega botnlangagötu þar sem stutt er í náttúruna. Stór bakgarður snýr til suðurs og við húsið er rúmgóður timburpallur með skjólveggjum.
- 188,1 m² einbýlishús, þar af 33,2 m² bílskúr - Fasteignamat 2027 - 134.950.000 kr. - Stór 974 m² lóð - Stór bakgarður í suðurátt - Rúmgóður timburpallur með skjólveggjum - Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með uppteknu lofti og sýnilegum viðarbitum - Fjögur svefnherbergi (en voru 5) - Hiti í bílaplani og stétt framan við húsið - Róleg botnlangagata og stutt í náttúruna
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D (LINKUR KEMUR INNAN SKAMMS)
Nánari lýsing Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi. Gestasalerni er inn af forstofu. Stofa og borðstofa mynda stórt og bjart alrými. Upptekið loft og sýnilegir viðarbitar setja sterkan svip á rýmið og stórir gluggar hleypa inn mikilli birtu og gefa góða tengingu við garðinn. Gott rými er bæði fyrir setustofu og stórt borðstofuborð. Eldhús er rúmgott með góðu skápaplássi og borðkrók. Svefnherbergin eru fimm samkvæmt teikningu en í núverandi nýtingu eignarinnar þá er búið að sameina tvö lítil herbergi í eitt stórt. Útgengt er úr hjónaherberginu út í bakgarð. Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu með vaski, salerni og sturtu. Gluggi er á baðherberginu. Þvottahús er við eldhúsið, það er rúmgott og frá því er útgengt í garð. Geymsla / búr er inn af þvottahúsi. Bílskúr er skráður 33,2 m² og býður upp á gott vinnu- og geymslupláss. Góð lofthæð er í bílskúrnum og möguleikar á hagnýtri nýtingu rýmisins.
Lóð og umhverfi Lóðin er 974 m² og bakgarðurinn snýr til suðurs. Við húsið er stór timburpallur með skjólveggjum sem myndar gott og skjólgott útisvæði. Garðurinn er rúmgóður og gróinn. Hiti er í bílaplani og stétt framan við húsið. Álmholt er róleg botnlangagata og stutt er frá eigninni í náttúruna. Varmárskóli er í nágrenninu auk þess sem stutt er í verslun, þjónustu og íþróttastarf í Mosfellsbæ.
Framkvæmdir og viðhald 2018: Lóðin var löguð og tré felld. Timburpallur var gerður. Drenað var meðfram húsinu frá bílskúr að eldhúsi, í gegnum pallsvæðið, auk þess sem drenlagnir eru í lóð. 2019: Þak hússins var vel yfirfarið og málað. 2022: Þakkantur var endurnýjaður og flasningar settar. 2023: Gler og glerlistar endurnýjaðir og opnanlegum fögum breytt þannig að þau opnast niður.
Um er að ræða rúmgott einbýlishús á óvenju stórri lóð þar sem stór suðurgarður, gott útisvæði, rúmgóð stofa og fjölmörg herbergi skapa góða möguleika fyrir fjölskyldu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is