RE/MAX Ísland logo
Opið hús:10. mars kl 17:00-18:00
Skráð 4. mars 2026
Söluyfirlit

Bakkasel 20

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
261.1 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
574.110 kr./m2
Fasteignamat
132.650.000 kr.
Brunabótamat
123.230.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1975
Þvottahús
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2055169
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta/ Upprunalegt
Frárennslislagnir
Yfirfarið
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta og yfirfarið/upprunalegt
Þak
Endurnýjað 2016
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Skáli yfir svölum sem snúa að bakgarði þarfnast lagfæringar.
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (📞 774-1477 / 📧 herabjork@remax.is ) kynna: 
Sjarmerandi og mikið endurnýjað 3ja hæða endaraðhús ásamt aukaíbúð, bílskúr og skjólríkum stórum garði við Bakkasel 20 í Seljahverfi. 

** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **


Eignin er samtals 261,1 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og samanstendur af forstofu, stofu, borðstofu og eldhús, 4 góðum svefnherbergjum, gestasalerni, baðherbergi, þvottahúsi, fullbúinni aukaíbúð í kjallara og bílskúr (19,5 m²).

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **

Nánari lýsing:
1. HÆÐ

Falleg aðkoma í gegnum hellulagðan garð að framanverðu og upp endurnýjaðar útitröppur með snjóbræðslu. 
Forstofa: Gengið er inn í snyrtilega forstofu með flísum og gólfhita. Inn af forstofu er rúmgott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavál og þurrkara. Vaskur,  handklæðaofn og pláss fyrir ísskáp/frystiskáp. Flísar á gólfi og gólfhiti.  
Gestasalerni er nýlega endurnýjað með fallegum "stuðlabergs" flísum á gólfi og gólfhita, upphengdu salerni og handlaug með innréttingu.
Eldhús: Bjart með gluggum á tvo vegu, flísum á gólfi og gólfhita. Vönduð sérsmíðuð viðar innréttingu með góðu skápaplássi, nýlegu spanhelluborði ásamt háf og ofni í vinnuhæð. Gott pláss fyrir stórt eldhúsborð. Tengi fyrir uppþvottavél.
Alrými (Stofa / borðstofa) :  Rúmgott og bjart parketlagt rými með aukinni lofthæð. Borðstofa og stofa eru samliggjandi og þaðan er gengið út á yfirbyggðar svalir sem snúa út að garði með fallegu útsýni til fjalla í norðri og vestri. 
Þvottahús: Inn af forstofu er rúmgott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavál og þurrkara. Vaskur,  handklæðaofn og pláss fyrir ísskáp/frystiskáp. Flísar á gólfi og gólfhiti.  
Af 1. hæð er gengið niður í kjallara þar sem er rúmgott herbergi með fataskáp, nýju harðparketi á gólfi og aðgengi út í garð. Geymsla undir stiga.
2.HÆÐ:
Af miðhæð er gengið upp stiga sem hefur verið endurgerður að mestu leyti. Veggir heilspartslaðir, tröppur teppalagðar, handrið lagfært og endurnýjað að hluta. Öll efri hæðin hefur verið endurnýjuð þ.e. heilspörtsluð og máluð, skipt um hurðar og húna, ofnar endurnýjaðir ásamt rofum og tenglum.
Hol: Bjart parketlagt rými sem hægt er að nýta td. sem vinnuaðstaðu. Á 2.hæð eru 3 svefnherbergi, þar af eitt sameinaõ úr tveimur. Nýtt parket á allri hæðinni.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum skápum og parketi á gólfi. Hjónaherbergi stækkað og sameinað sólskála sem snýr i suõur. 
Herbergi I: Sameinað úr tveim herbergjum og er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi II: Parket á gólfi. 
Baðherbergi:  Nýlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtu, upphengdu salerni og góðri innrétting undir og yfir handlaug ásamt speglaskáp með lýsingu. 
KJALLARI - Auka íbúð (í útleigu):
Sér inngangur í íbúð með samþykktri lofthæð. Íbúðin er í útleigu (270.000 á mánuði) og er leigutaki tilbúin að leigja áfram ef áhugi og seljendur gefa mjög góð meðmæli. Tvö ágæt rými ásamt svefnherbergi, geymslu og flísalögðu baðherbergi með sturtuklefa. Eldhúsaðstaða með innréttingu. Nýtt harðparkett á gólfi. 
BÍLSKÚR:
Bílskúr er með heitu og köldu vatni ásamt hurðaopnara. Góð lofthæð og milliloft með geymslurými.  Nýleg LED lýsing og búið er að leggja fyrir rafhleðslu.

Viðhald og framkvæmdir frá 2016-2025:
Rafmagnstafla lagfærð.
Nýir efri skápar i þvottahúsi.
Parket á 2.hæð endurnýjað. 
Skipt um flesta ofna i húsinu.
Gluggakistur pússaðar og lakkaõar.
Nýjar innihurðir á efri hæð og miðhæð.
Stigagangur á milli hæða endurgerður frá A-Ö.
Baðherbergi og gestasalerni endurnýjað frá A-Ö.
Bticino Living Now snjallljósastýring i flestum rýmum.
Gólfhiti í eldhúsi, forstofu, þvottahúsi og á gestasalerni. 
Loftapanell pússaður, grunnaður og sprautulakkaður í stofu og boröstofu.
Að utan:
Skipt um Þakjárn 2016.
Skólp lagfært eftir myndatöku.
Gler endurnyjað ad hluta i húsinu.
Allar girðingar pússaðar og málaðar 2024.
Lýsing endurnýjuõ i bilskúr og LED lýsing sett i staõinn
Kaldavatns- og hitavatnsinntak endurnyjað af Orkuveitunni.
Útitröppur endurbyggðar og ruslaskýli sandsparslaõ upp á nýtt. Gólfhiti i útitröppum.

BAKKASEL 20 er virkilega skemmtilegt og vel skipulagt fjölskylduhús byggt 1975 í Seljahverfi og partur af raðhúsum sem að mynda U með skemmtilegu svæði í miðjunni sem að nýtist vel fyrir leik, samtals og samveru með nágrönnum. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, er endaraðhús og stendur á stórri og gróinni lóð með fallegu útsýni til fjalla í norðri og vestri. Eignin er vel staðsett í þessu vinsæla og fjölskylduvæna hverfi með göngufæri í leik- og grunnskóla og stutt í Mjöddina og nágrenni með allri sinni þjónustu og verslunum. Góðir göngu- og hjólastígar eru í hverfinu, stutt í stofnbrautir og almenningssamgöngur. 
 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk löggiltur fasteignasali í 📞 774-1477 og/ eða á 📧 herabjork@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref. 
📞 774-1477 / 📧 herabjork@remax.is
Byggt 1984
2 m2
Fasteignanúmer
2055169
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
7.580.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Jakasel 38
109 Reykjavík
228.1 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
825
701 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Opið hús:03. maí kl 17:30-18:00
Image
Opna eign
Friggjarbrunnur 35
113 Reykjavík
233.3 m2
Parhús
623
600 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
682 þ.kr./m2
163.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús á tveimur hæðum
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin