RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG KYNNA:Glæsilegt einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Fagraþing 6 í Kópavogi. Mikil lofthæð, stórfenglegt útsýni til fjalla. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er húsið 217,5 fm, þar af bílskúr 49,8 fm. Gott alrými með stórri stofu, eldhúsi og borðstofu, hjónasvíta með tveimur fataherbergjum og stóru baðherbergi og tvö mjög rúmgóð barnaherbergi. Tvöfaldur bílskúr og stórt upphitað bílaplan.
Sérstaklega falleg eign á besta stað í Kópavogi þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, í verslun, skóla, leikskóla og Íþróttahöllina Kórinn.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.isKÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánar um eignina:Húsið stendur á einstaklega fallegri hornlóð með miklu útsýni.
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Barnaherbergi I: Rúmgott og bjart forstofuherbergi með parket á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með flísum á gólfi. Gott skápapláss, eyja með vask og eldavél.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfi og gólfsíðir gluggar. Útgengi á hellulagða stétt og út á fallegan pall þar sem er einstaklega glæsilegt útsýni yfir Elliðavatn og upp til fjalla.
Hjónasvíta: Mjög rúmgott og bjart, parket á gólfi, tvö fataherbergi og stórt baðherbergi inn af herberginu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Mjög rúmgott, hvít innrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi og veggjum, hornbaðkar, sturta, handklæðaofn, upphengt salerni. Opnanlegur gluggi.
Barnaherbergi II: Mjög rúmgott, var áður tvö herbergi og auðvelt að breyta því aftur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, opnanlegur gluggi. Hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni,sturtuklefi og sturta.
Herbergi í bílskúr: Búið er að stúka hluta af bílskúrnum sem herbergi með tveimur góðum gluggum, auðvelt að breyta til baka.
Tvöfaldur bílskúr: epoxy á gólfi. Stórir fataskápar, tvær bílskúrhurðir með rafmagnsopnun. Innangengt er í bílskúr en að auki er hurð úr bílskúr út í garð.
Garðurinn er stór með hellulagðri stétt sem umlykur húsið og til hliðar við bílskúr er mjög stórt, upphitað bílaplan.
Fyrir framan húsið er hellulögð verönd með skjólveggjum og fyrir aftan húsið er nýlegur pallur með miklu útsýni.
Framkvæmdasaga:
LED lýsing sett í stað halogen í opnu rými í eldhúsi/stofu 2024, hluti af lýsingu í þakskeggi endurnýjuð sama ár.
Þak málað ágúst 2023 – 5 ára ábyrgð á málningu, málarinn kemur í smá lagfæringu síðar í sumar.
Pallur gerður 2021
Útigeymsla gerð 2021
2020 gert herbergi í hluta bílskúrs, auðvelt að breyta til baka.
Fyrirhugað fasteignamat árið 2026 er 167.950.000 kr.Glæsileg eign á góðum stað í efri byggðum Kópavogs. Einstök náttúrufegurð og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk