RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu:Fallegt, vel staðsett, 200fm einbýlishús í Vogum Vatnsleysuströnd. Húsið er skráð 200,3fm og þar af er bílskúr sem 56fm, auk þess fylgir útigeymsla og gróðurhús sem ekki eru skráð í fermetratölu eignarinnar. Húsið stendur á eignarlóð og fasteignagjöld því lægri. Geymsluloft yfir hluta hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing: Forstofa flísar á gólfi og fatahengi.
Borðstofa við hlið eldhúss er rúmgóð með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi, útgengt á verönd sem snýr í vestur úr stofu.
Eldhús flísar á gólfi, borðkókur og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp og parketi á gólfi, útgengt á verönd til suðurs úr hjónaherbergi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegt fag.
Þvottahús flísar á gólfi, gott skápapláss, einnig inngangur í húsið.
Efri hæð: hol, setustofa og svefnherbergi parket á gólfum.
Bílskúrinn er mjög rúmgóður með geymslulofti. Húsið er klætt með bárujárni, gluggar nýlegir, húsið hefur fengið reglulegt viðhald. Hellulagt bílaplan. Stór og gróin lóð með fallegum trjágróðri, lóðin er með pöllum, skjólgirðingu og heitum potti, gróðurhús með vínvið, matjurtargarðar og lítil áhaldageymsla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk